Skip to main content

Sorgin gleymir engum

Bragi Skúlason, doktorsnemi við Félags- og mannvísindadeild

Sorgarviðbrögð karlmanna hafa aldrei verið skoðuð með skipulegum hætti á Íslandi en Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur og doktorsnemi, vinnur nú að slíkri rannsókn. Markmiðið með rannsókninni er að hluta að skrifa fræðsluefni, sérstaklega fyrir fagfólk, en Bragi vann í mörg ár hjá sorgarsamtökunum Nýrri dögun. Þegar hann fór að starfa með krabbameinssjúklingum áttaði hann sig á því að ákveðinn kynjamunur er til staðar þegar tekist er á við sorgina.
 

Bragi Skúlason

„Það verður að segjast eins og er að sorgin á Íslandi hefur ekki verið neitt sérstaklega opið málefni. Það hefur þurft að skoða meira heildstætt hvernig við ætlum sem samfélag að takast á við stór og mikil áföll.“

Bragi Skúlason

„Í þó nokkur ár hafði ég haldið námskeið fyrir ekkjur og ekkla,“ segir Bragi. „Námskeiðin höfðu nýst mjög vel en það gekk frekar illa að fá karlana inn á þau. Hugsunin hjá mér var því að kortleggja karlana til að sjá hverjar þeirra þarfir væru umfram þarfir ekknanna.“

Helstu niðurstöður eru í samræmi við rannsóknir sem hafa verið gerðar annars staðar, þó eru nokkur atriði sem virðast sérstæð fyrir Ísland. Meðal annars kom fram að dánartíðni ekkla er hærri en hjá karlmönnum yfirleitt. Eins sýna niðurstöður að íslenskir karlmenn eiga fáa trúnaðarvini og yfirleitt er það eiginkonan sem er þeirra helsti trúnaðarvinur.

„Það verður að segjast eins og er að sorgin á Íslandi hefur ekki verið neitt sérstaklega opið málefni. Það hefur þurft að skoða meira heildstætt hvernig við ætlum sem samfélag að takast á við stór og mikil áföll. Sumir karlar þekkja ekki þessa líðan sem fylgir sorginni og eru algjörlega slegnir út af laginu. Þeir hafa ekki upplifað sorgina með svona djúpstæðum hætti áður.“

Það virðist líka einkenna karlmenn að þeir halda alltaf að þeir geti farið í gegnum þetta á hnefanum og geti gert það einir. „Staðreyndin er að maður þarf á öðrum að halda í gegnum svona þungbæra reynslu og þar kemur mikilvægi stuðnings og aðstoðar í sorgarferlinu inn í myndina,“ segir Bragi sem er nú þegar farinn að nýta niðurstöður sínar í starfi.

Leiðbeinandi: Gísli Pálsson, prófessor við Félags- og mannvísindadeild.