Sarah Franziska Engmann, doktorsnemi við Raunvísindadeild
„Við könnum nýja leið til að vinna orku úr sólarljósi og umbreyta í efnaorku,“ segir Sarah Franziska Engmann, doktorsnemi í eðlisefnafræði. Í rannsóknum sínum reynir hún að nota sýnilega hluta sólarljóssins til að losa um rafeindir á yfirborði efna. Þessar rafeindir eru síðan notaðar til að hvata efnahvörf og koma þannig orku sólarljóssins yfir í efnaorku. Í þessu samhengi rannsakar Sarah víxlverkun milli sameinda og rafeinda með lága orku. Þótt orka rafeindarinnar sé lítil getur hún komið af stað flóknu ferli sem leiðir af sér niðurbrot sameindarinnar og getur þannig virkað sem efnahvati.
Sarah er þýsk og lauk meistaraprófi í heimabæ sínum, Erlangen. „Mig vantaði tilbreytingu eftir að hafa búið nær alla ævi í nágrenni Erlangen,“ segir hún og lýsir ánægju með dvölina á Íslandi. „Það var hægðarleikur að fá leigt húsnæði og það auðveldar öll samskipti að nær allir tala ensku. Stutt er í náttúruna og mér líður eins og ég sé stödd á vinsælum ferðamannastað.“
Tilraunir munu m.a. fara fram í örtæknikjarna Háskóla Íslands þar sem reynt verður að hanna eiginleika fastefnisyfirborða þannig að sjáanlegt ljós eða varmi nægi til að örva rafeindir við yfirborðið að því marki að þær geti hvatað efnahvörf á þessum yfirborðum. Verkefnið er unnið í samstarfi við Svein Ólafsson, vísindamann á eðlisfræðistofu Raunvísindastofnunar.
„Okkur langar að skilja betur það sem gerist í sameindunum þegar þær víxlverka við lágorkurafeindir. Sú vitneskja kemur til með að nýtast á margvíslegan máta, t.d. til að skýra hvernig mengandi lofttegundir sem hvata niðurbrot ósónlagsins eyðast í efri lögum gufuhvolfsins.“ Sarah áætlar að ljúka doktorsnáminu 2013 og eftir útskrift vill hún helst vinna áfram við rannsóknir í eitt ár. „Þar á eftir væri ég alveg til í að starfa í einkageiranum utan heimalandsins í nokkur ár.“
Leiðbeinandi: Oddur Ingólfsson, prófessor í efnafræði hjá Raunvísindastofnun háskólans.
Sarah lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands árið 2013.