Skip to main content

Söfnun og meðferð persónuupplýsinga

Margrét Lilja Guðmundsdóttir, doktorsnemi við Félags- og mannvísindadeild

„Markmiðið er meðal annars að greina hversu víðtækt rafrænt eftirlit er á Íslandi og hvert viðhorf almennings er til slíks eftirlits,“ segir Margrét Lilja Guðmundsdóttir, doktorsnemi í félagsfræði, um rannsókn sína Eftirlit eða öryggi – Rafrænt eftirlit í íslensku þjóðfélagi. Hún hlaut styrk til verkefnisins úr Rannsóknasjóði Háskóla Íslands vorið 2012.

Rannsóknin er nokkurs konar framhald af meistaraverkefni Margrétar sem hún vann undir handleiðslu Guðbjargar Lindu Rafnsdóttur, prófessors við Félags- og mannvísindadeild. „Ég kannaði þá rafrænt eftirlit á vinnustöðum og þau áhrif sem meðal annars afkastamælingar, símtalsupptökur og öryggismyndavélar hafa á líðan starfsfólks. Ég vildi rannsaka þetta viðfangsefni enn frekar og þá út frá samfélaginu í heild sinni,“ segir Margrét en í rannsókninni verður sérstök áhersla lögð á hvernig löggjafar- og framkvæmdavaldið mótar og framfylgir lögum um þetta eftirlit.

Margrét Lilja Guðmundsdóttir

„Markmiðið er meðal annars að greina hversu víðtækt rafrænt eftirlit er á Íslandi og hvert viðhorf almennings er til slíks eftirlits.“

Margrét Lilja Guðmundsdóttir

Miklar umræður hafa orðið síðastliðin misseri um auknar heimildir yfirvalda til að afla upplýsinga um þegna landsins. Með aukinni tæknivæðingu hefur kerfisbundið eftirlit lögreglunnar orðið yfirgripsmeira og meðal annars tölvuskrár og upplýsingar um símanotkun og ferðir fólks orðnar aðgengilegri en áður. Þó að flestir vilji lifa í öruggu samfélagi er almenningur ekki alltaf sáttur við að slíkum persónuupplýsingum sé safnað og þær unnar. Umræðan um réttinn til friðhelgi einkalífs verður æ meiri í þjóðfélaginu, sem og um hvernig meðferð persónuupplýsinga er háttað.

„Í raun er þessi rannsókn fyrst og fremst unnin til að afla þekkingar þar sem hún liggur á sviði sem lítt hefur verið skoðað hér á landi. Hún varpar ljósi á hvað hefur áhrif á lagasetningu og hvernig þeim lögum er framfylgt sem snúa að rafrænu eftirliti í íslensku þjóðfélagi,“ segir Margrét um ávinninginn af rannsókninni.

Leiðbeinandi: Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor við Félags- og mannvísindadeild.