Skip to main content

Skólastjórar séu leiðandi afl

Börkur Hansen, prófessor í stjórnunarfræði menntastofnana, hefur um nokkurt skeið rannsakað störf skólastjóra í grunnskólum ásamt samstarfsfólki sínu, Ólafi H. Jóhannssyni, lektor við Uppeldis- og menntunarfræðideild, og Steinunni Helgu Lárusdóttur, dósent við sömu deild. „Við höfum einkum beint athygli okkar að hlutverki skólastjóra, s.s. hvaða verkefnum þeir helst sinna, forgangsröðun verkefna, tengslum þeirra við starfsfólk og sveitarfélög, sýn þeirra á gildi mats í skólastarfi og leiðtogahlutverk þeirra við stjórnun og þróun skólastarfs,“ segir Börkur. Sú rannsókn sem hann og Steinunn Helga vinna nú að beinist sérstaklega að kennslufræðilegri forystu skólastjóra í grunnskólum. 

Börkur Hansen

„Við höfum einkum beint athygli okkar að hlutverki skólastjóra, s.s. hvaða verkefnum þeir helst sinna, forgangsröðun verkefna, tengslum þeirra við starfsfólk og sveitarfélög, sýn þeirra á gildi mats í skólastarfi og leiðtogahlutverk þeirra við stjórnun og þróun skólastarfs“

Börkur Hansen

„Ýmsar rannsóknir í áranna rás hafa sýnt fram á mikilvægi þess að skólastjórar séu leiðandi um framþróun í kennsluháttum með það að markmiði að koma sem best til móts við nemendur og bæta árangur þeirra. Þessi rannsókn er liður í því að afla upplýsinga um hlutverk þeirra sem kennslufræðilegra leiðtoga,“ segir Börkur. 

Í nútímakenningum um skólastjórnun er lögð áhersla á að stjórnendur séu í gagnvirkum tengslum við kennara um að leiða skólastarfið með það fyrir augum að breyta og bæta. Þróun náms og kennslu eru þar lykilatriðin. Börkur segir rannsóknina vera hluta af umfangsmiklu rannsóknarverkefni sem ber heitið Starfshættir
í grunnskólum. „Við sem tengjumst verkefninu erum þessa dagana að ganga frá bók í umsjá Gerðar G. Óskarsdóttur. Einn kaflanna greinir frá niðurstöðum um stjórnun og kennslufræðilega forystu skólastjóra. Talsverður munur kom fram milli þeirra tuttugu skólastjóra sem rætt var við,“ segir hann. Flestir þeirra lögðu áherslu á að vera hvetjandi um þróun og framfarir. Nokkrir virtust hafa mjög mótaða sýn á hlutverk sitt sem kennslufræðilegir leiðtogar og fylgja henni vel eftir, aðrir virtust beita sér lítið sem slíkir. 

„Þær rannsóknir sem til eru á störfum skólastjóra hér á landi taka ekki til kennslu- fræðilegrar forystu með sama hætti og hér um ræðir. Hér er því leitað eftir upplýsingum úr íslenskum veruleika sem unnt er að hagnýta fyrir ráðgjöf, nám og kennslu, auk samanburðar af ýmsu tagi, s.s. við sambærilegar erlendar rannsóknir,“ útskýrir Börkur.