Svanborg R. Jónsdóttir, lektor í listum og skapandi starfi.
Rannsóknin Þróun kennslu til að efla skapandi hugsun og skapandi verkefni nemenda fór af stað á haustmánuðum 2013. Þar er leitast við að finna áhrifaríkar kennsluleiðir til að efla bæði skapandi hugsun og athafnir.
Svanborg R. Jónsdóttir
„Á síðustu árum er farið að viðurkenna í æ ríkara mæli að samfélagið þarf á skapandi fólki að halda. Þessi viðurkenning birtist meðal annars í því að í aðalnámskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla er nú talað um sköpun sem einn af grunnþáttum menntunar.“

„Á síðustu árum er farið að viðurkenna í æ ríkara mæli að samfélagið þarf á skapandi fólki að halda. Þessi viðurkenning birtist meðal annars í því að í aðalnámskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla er nú talað um sköpun sem einn af grunnþáttum menntunar. Mikilvægi skapandi hugsunar og getu til skapandi athafna kemur einnig skýrt fram í því að nú á tímum er kallað eftir nýsköpun. Ákallið um sjálfbæra þróun krefst þess að fólk hafi ræktað hæfileika sína til skapandi hugsunar og aðgerða til að geta leyst vandamál og mætt margvíslegum og flóknum þörfum heimsins,“ segir Svanborg R. Jónsdóttir, lektor í listum og skapandi starfi, en hún stýrir rannsókninni sem hlaut styrk úr Rannsóknasjóði Háskóla Íslands.
„Um er að ræða starfendarannsókn þar sem kennarar af fjórum skólastigum rannsaka eigið starf og beina sjónum einkum að því hvernig þeir vinna með nemendum sínum að því að efla sköpun þeirra. Þátttakendur eru þrír kennarar á Menntavísindasviði, tveir grunnskólakennarar (íslenskukennari og stærðfræðikennari), tveir framhaldsskólakennarar (íslenskukennarar) og einn leikskólakennari,“ útskýrir Svanborg.
„Rannsóknin stendur yfir í tvö skólaár og vonumst við til að hún gefi af sér bæði hagnýtar og fræðilegar niðurstöður sem geta stutt kennara sem vilja efla sköpun í námi nemenda sinna. Fyrstu greiningar og niðurstöður eru væntanlegar vorið 2014 en áfram verður unnið með þær og frekari gögnum safnað skólaárið 2014–2015,“ segir Svanborg.