Þórhildur Ólafsdóttir, doktorsnemi við Hagfræðideild
„Markmiðið er að rannsaka með hvaða hætti efnahagssveiflur hafa áhrif á heilsu fólks. Erlendis hefur komið í ljós að líkamleg heilsa fólks batnar á margan hátt í efnahagslægðum. Hins vegar er óljóst hvort þessi áhrif eru tilkomin vegna breyttrar hegðunar fólks eða hvort um beina orsök af breyttum ytri aðstæðum er að ræða,“ segir Þórhildur Ólafsdóttir, hagfræðinemi um doktorsrannsókn sína.
Rannsóknin er beint framhald af verkefni sem hún vann með leiðbeinanda sínum eftir meistaranám í heilsuhagfræði en við verkefnið naut Þórhildur styrks frá Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Þórhildur Ólafsdóttir
„Erlendis hefur komið í ljós að líkamleg heilsa fólks batnar á margan hátt í efnahagslægðum. Hins vegar er óljóst hvort þessi áhrif eru tilkomin vegna breyttrar hegðunar fólks eða hvort um beina orsök af breyttum ytri aðstæðum er að ræða.“

Doktorsrannsóknin er tvíþætt. „Annars vegar er hún fólgin í að kanna hvort tímabundin aukning á vinnuframboði hefur áhrif á líkur á kransæðatilfellum. Í þeim tilgangi er nýtt sú náttúrulega „tilraun“ sem átti sér stað hérlendis árið 1987, en það ár þurfti fólk ekki að greiða tekjuskatt vegna breytinga á skattkerfi landsmanna. Hins vegar hyggst ég kanna hvort breytingar á tekjum og vinnustundum í kjölfar efnahagskreppunnar 2008 hefur haft áhrif á heilsuhegðun einstaklinga, þ.e. reykingar og áfengisneyslu,“ segir Þórhildur.
Hún bendir á að meirihluti erlendra rannsókna á samlegðargögnum sýni að í efnahagsuppsveiflu aukist dánartíðni af völdum hjartasjúkdóma. „Niðurstöður rannsóknarinnar munu gefa vísbendingar um hvaða þættir liggja að baki því sambandi. Rannsóknin veitir m.a. möguleika á að greina milli þess hvort um aukna áhættuhegðun er að ræða í uppsveiflu eða hvort fólk fjárfesti síður í heilsu sinni þegar næga vinnu er að hafa,“ segir Þórhildur enn fremur.
Niðurstöður rannsóknarinnar koma til með að auka þekkingu á rannsóknarsviðinu. „Þær verður hægt að hagnýta á vinnumarkaði og í heilbrigðisþjónustu, einkum ef þörf reynist á að draga úr mögulegum skaðlegum áhrifum af efnahagsuppsveiflum á heilsu,“ bendir Þórhildur á.
Leiðbeinandi: Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, lektor við Hagfræðideild.