Ragný Þóra Guðjohnsen, doktorsnemi við Uppeldis- og menntunarfræðideild
„Ungt fólk á Íslandi þyrfti að fá fleiri tækifæri til þátttöku í sjálfboðaliðastarfi og kynna þarf fyrir því möguleika til þátttöku,“ segir Ragný Þóra Guðjohnsen, doktorsnemi í uppeldis- og menntunarfræðum. Hún er jafnframt lögfræðingur og rannsakar sjálfboðaliðastarf ungmenna.
„Okkur leikur m.a. forvitni á að vita hvort ungmenni setji sér borgaraleg markmið og einnig að sjá hver þessi markmið eru. Við viljum kanna hvaða leiðir þau velja til þátttöku í samfélaginu, einkum í sjálfboðaliðastarfi. Það er spennandi að vita hvort líta megi á þátttöku í sjálfboðaliðastarfi sem tæki til að efla borgaravitund ungmenna,“ segir Ragný.
Ragný Þóra Guðjohnsen
„Ungt fólk á Íslandi þyrfti að fá fleiri tækifæri til þátttöku í sjálfboðaliðastarfi og kynna þarf fyrir því möguleika til þátttöku.“

Doktorsverkefni Ragnýjar fylgir í kjölfar meistaranáms hennar í uppeldis- og menntunarfræðum við Háskóla Íslands en árið 1992 lauk hún einnig embættisprófi í lögfræði frá sama skóla. Doktorsverkefnið er hluti af rannsókn Sigrúnar Aðalbjarnardóttur prófessors þar sem könnuð er borgaravitund ungs fólks í lýðræðisþjóðfélagi. Þátttakendur eru á annað þúsund ungmenni á aldrinum 14 og 18 ára en að auki hefur Ragný tekið 22 djúpviðtöl við ungmenni úr hópnum.
Aðspurð segist Ragný nýbyrjuð að skoða grunngögnin. „Við sjáum að um fimmtungur svarenda stundar hefðbundið sjálfboðastarf.“ Niðurstöðurnar hyggst Ragný nýta sér í starfi sínu sem bæjarfulltrúi í Garðabæ þar sem hún situr í skólanefnd og bæjarráði.
„Umræða um sjálfboðaliðastarf hefur aukist í þjóðfélaginu eftir kreppu og ég hef orðið vör við, í viðtölum við ungmennin, að þau vilja leggja sitt af mörkum. Við eigum svo mikinn fjársjóð í unga fólkinu okkar og þurfum að gefa því meiri tækifæri og búa þeim vettvang til þátttöku,“ segir Ragný að lokum.
Leiðbeinandi: Sigrún Aðalbjarnardóttir, prófessor við Uppeldis- og menntunarfræðideild