Skip to main content

Símenntun á samfélagsmiðlum

Á haustdögum 2012 var verkefnið MenntaMiðja sett á laggirnar á Menntavísindasviði með það að meginmarkmiði að styðja við starfssamfélög skólafólks og hvetja það til að mynda tengsl. Einnig var ætlunin að MenntaMiðja ýtti undir opið flæði hugmynda og þekkingar og stuðlaði að samstarfi um að þróa nýjar leiðir í námi og kennslu. 

„MenntaMiðja byggist á kenningum menntunarfræðingsins Etiennes Wengers um starfssamfélög. Starfssamfélag er hópur fólks sem deilir áhuga eða ástríðu fyrir því sem það fæst við og lærir hvernig má bæta sig í því með reglulegum samskiptum,“ útskýrir Tryggvi Thayer, verkefnisstjóri MenntaMiðju, og bætir við: „MenntaMiðja er eins konar umgjörð utan um grasrótarstarf sem hefur sprottið upp meðal skólafólks sem hefur tekið höndum saman um að skiptast á upplýsingum og þekkingu sem varðar starf þess. Við köllum þessi starfssamfélög torg.“ Fimm torg tengjast MenntaMiðju: Tungumálatorg, Náttúrutorg, Sérkennslutorg, Heimspekitorg og Upplýsingatæknitorg, og eru nokkur til viðbótar í mótun að sögn Tryggva. 

Tryggvi Thayer

„MenntaMiðja er eins konar umgjörð utan um grasrótarstarf sem hefur sprottið upp meðal skólafólks sem hefur tekið höndum saman um að skiptast á upplýsingum og þekkingu sem varðar starf þess.“

Tryggvi Thayer

Starfsemi torganna fer að miklu leyti fram á samfélagsmiðlum. „Þar hafa skapast öflug samfélög þar sem kennarar, skólastjórnendur, kennaranemar og aðrir sem að skólamálum koma skiptast á upplýsingum um kennsluaðferðir, nýtingu upplýsingatækni og verkefni, og þar vinna menn markvisst að því að bæta í þekkingarbrunninn innan síns geira,“ segir Tryggvi. Þar að auki standa torgin og MenntaMiðja fyrir ýmsum viðburðum sem tengjast símenntun og starfsþróun skólafólks, oft í samstarfi við aðra.

„Verkefnisstjórar MenntaMiðju og torganna og samstarfsaðilar þeirra búa yfir töluverðri sérþekkingu á samfélagsmiðlum og annarri upplýsingatækni sem nýst getur til símenntunar og starfsþróunar,“ segir Tryggvi og bætir við: „Við sjáum fram á að samfélagsmiðlar og Netið gegni mikilvægu hlutverki í símenntun skólafólks í framtíðinni. Tæknilegar og samfélagslegar breytingar sem áhrif hafa á skólastarf verða sífellt örari og þar af leiðandi verður erfiðara að mæta þörfum kennara með hefðbundinni þekkingarmiðlun, s.s. námskeiðahaldi. Skólafólk mun þurfa að sinna þekkingar- og upplýsingamiðlun að miklu leyti sjálft til að halda í við breytingar og MenntaMiðja og torgin eru kjörinn vettvangur til þess.“

Tengt efni