Skip to main content

Siðfræði, lýðræði og bankahrun

Vilhjálmur Árnason, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild

Heimspekistofnun og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands efndu í upphafi árs 2013 til viðamikils málþings til heiðurs Vilhjálmi Árnasyni, prófessor við Hugvísindasvið Háskóla Íslands, stjórnarformanni Siðfræðistofnunar og einum af höfundum siðfræðikafla Rannsóknarskýrslu Alþingis. Málþingið var haldið í tilefni af sextugsafmæli Vilhjálms.

Vilhjálmur Árnason

Vilhjálmur Árnason hefur einkum fengist við siðfræði og félagslega heimspeki, bæði fræðilega og hagnýta.

Vilhjálmur Árnason

Vilhjálmur Árnason hefur einkum fengist við siðfræði og félagslega heimspeki, bæði fræðilega og hagnýta. Hann hefur birt fræðilegar greinar og bækur um þau efni víða, bæði á íslensku og erlendum málum. Á undanförnum árum hefur Vilhjálmur lagt stund á rannsóknir á sviði lífsiðfræði og fylgt þar eftir riti sínu Siðfræði lífs og dauða sem kom fyrst út árið 1993 en hefur verið endurútgefið, bæði á íslensku og þýsku. Hann hefur skrifað um álitamál tengd erfðafræði, svo sem gagnagrunnsrannsóknir og notkun erfðaupplýsinga í heilbrigðisþjónustu. Hann hefur einnig tekist sérstaklega á við spurningar sem varða lýðræðislega stefnumótun í heilbrigðismálum og hvernig efla megi almennt vísindalæsi og borgaravitund.

Vilhjálmur leiðir samstarfsnet fræðimanna frá Norðurlöndum og Eystrasaltslöndunum um heimspeki og siðfræði læknavísinda og situr í stjórn Alþjóðasamtaka um lífsiðfræði.

Vilhjálmur er þó líklega þekktastur fyrir starf sitt sem formaður vinnuhóps um siðferði og starfshætti í tengslum við rannsóknarnefnd Alþingis á orsökum bankahrunsins. Hann hefur fylgt þeirri vinnu eftir með ýmsum hætti og leiðir nú þverfaglegan rannsóknahóp sem nýverið fékk styrk frá Rannís til að greina íslenskt lýðræði. Hann er einnig þátttakandi í alþjóðlegu rannsóknaverkefni um fjölþætta ábyrgð á fjármálahruninu.

Á málþinginu sem haldið var til heiðurs Vilhjálmi voru flutt fjölbreytt erindi sem tengdust heimspeki eða siðfræði Vilhjálms. Erindin verða gefin út í ritröð sem Heimspekistofnun og Siðfræðistofnun standa að. Í þeirri ritröð hafa komið út bækurnar Hugsað með Páli árið 2005 og Hugsað með Mill 2007. Unnið er að útgáfu bókarinnar Hugsað með Platoni og fjórða ritið verður Hugsað með Vilhjálmi.