Anni Guðný Haugen, lektor í Félagsráðgjafardeild
„Þetta er rannsókn sem snýst um það að fá mynd af því hvernig samstarf barnaverndarnefnda er við þær fjölskyldur, það er börn og foreldra, sem barnaverndaryfirvöld hafa afskipti af," segir Anni Guðný Haugen, lektor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Til að öðlast meiri þekkingu á þessari samvinnu stendur Anni Guðný nú fyrir rannsókn þar sem áætlanir um meðferð barnaverndarmála verða skoðaðar.
„Svona áætlanir á að gera í öllum barnaverndarmálum og það á að vinna með börnum, sem hafa aldur og þroska til, og foreldrum þeirra. Samvinnan getur verið afar viðkvæm en markmiðið er að sjá hvernig þessi samvinna er í raun út frá sjónarhorni þeirra sem að henni koma.“
Anni Guðný Haugen
„Þetta er rannsókn sem snýst um það að fá mynd af því hvernig samstarf barnaverndarnefnda er við þær fjölskyldur, það er börn og foreldra, sem barnaverndaryfirvöld hafa afskipti af."

„Það sem mér finnst áhugaverðast í þessari rannsókn er að heyra upplifun þessara barna og foreldra um það hvort þeim finnist þau geta haft einhver áhrif á það sem er að gerast. Samvinna er lykilhugtak í öllu barnaverndarstarfi, fyrst og fremst vegna þess að án hennar er erfitt að ná fram þeim breytingum sem nauðsynlegar eru til að bæta aðstæður barnsins,“ segir Anni Guðný.
Hún bendir á að íslenskar rannsóknir um þetta málefni séu mjög takmarkaðar. „Það er æskilegt að barnaverndarstarfsmenn geti nýtt sér niðurstöður þessarar rannsóknar í starfi sínu. Þær barnaverndarnefndir sem ég hef rætt við eru mjög jákvæðar gagnvart rannsókninni og vilja heyra þessar niðurstöður til að nýta í starfi sínu.“
Áhugi Anniar á þessu málefni er ekki nýr af nálinni enda hefur hún sjálf unnið í barnaverndarnefnd í tæplega 30 ár. „Eitt af því sem mér hefur fundist vanta er að vita hvernig fjölskyldur upplifa þetta ferli. Á hverju ári berast um 6000 tilkynningar til barnaverndarnefnda og höfð eru afskipti af rúmlega tvö þúsund börnum á ári. Þess vegna er mikilvægt að rannsaka marga þætti barnaverndarstarfsins til að tryggja að sá stuðningur sem stefnt er að því að veita nýtist sem best.“