Skip to main content

Sálræn líðan kvenstúdenta við HÍ

Rúm 20% kvenstúdenta finna fyrir sálrænni vanlíðan í formi þunglyndis- og kvíðaeinkenna. Þetta kemur fram í rannsókn Jóhönnu Bernhardsdóttur, lektors í hjúkrunarfræði og doktorsnema við Háskóla Íslands. Rúm 60% þeirra sem sögðust þurfa á aðstoð að halda töldu sig ekki hafa efni á henni og tæp 30% sögðu að fordómar í samfélaginu kæmu í veg fyrir að þau leituðu sér hjálpar. Rannsókn Jóhönnu hefur hlotið styrk úr rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur.

Jóhanna segir að í háskólasamfélaginu felist miklir möguleikar á að koma þeim til hjálpar sem eiga við andlega erfiðleika að stríða. „Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hversu stórt hlutfall kvenna á aldrinum 19-45 ára sem stunda nám við Háskóla Íslands finnur fyrir sálrænni vanlíðan,“ segir Jóhanna og bætir við: „Einnig spurði ég um sjálfsviðhorf kvennanna og undir hversu miklu álagi þær töldu sig vera. Ég bar svo niðurstöðurnar saman við aðra hópa, þar með talda jafnaldra kvenstúdentanna í landskönnuninni Heilbrigði og aðstæður Íslendinga sem dr. Rúnar Vilhjálmsson stjórnaði. Að endingu skoðaði ég þörf kvenstúdenta fyrir geðheilheilbrigðisþjónustu og þeirra eigið mat á þörf fyrir slíka þjónustu.

Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að um 20% kvenna í HÍ eigi við sálræna vanlíðan að stríða, finni fyrir þunglyndis- og kvíðaeinkennum. Þó að þetta sé hátt hlutfall má segja að það hafi komið mér þægilega á óvart að það skyldi ekki vera hærra. Ýmsar erlendar rannsóknir benda til að á milli 25-35% háskólanema finni fyrir þunglyndis- og kvíðaeinkennum.Þegar ég skoðaði jafnöldrur kvenstúdentanna úti í þjóðfélaginu kom í ljós að stúdínurnar voru betur staddar hvað varðar sálræna líðan en aðrar konur. Þær höfðu líka meiri sjálfsvirðingu og getumat þeirra var hærra. Það er þekkt að þeir sem eru betur menntaðir og búa við betri félagslegar aðstæður eru síður þunglyndir eða kvíðnir en hinir sem eru minna menntaðir og búa við lakari kjör.

Jóhanna Bernharðsdóttir, lektor í Hjúkrunarfræðideild

Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að um 20% kvenna í HÍ eigi við sálræna vanlíðan að stríða, finni fyrir þunglyndis- og kvíðaeinkennum. Þó að þetta sé hátt hlutfall má segja að það hafi komið mér þægilega á óvart að það skyldi ekki vera hærra. Ýmsar erlendar rannsóknir benda til að á milli 25-35% háskólanema finni fyrir þunglyndis- og kvíðaeinkennum.

Jóhanna Bernharðsdóttir

Það skýrir kannski að hluta til hvers vegna kvenstúdentarnir voru betur staddir. Þeir töldu sig hins vegar búa við miklu meiri streitu en jafnöldrur þeirra í samfélaginu. Mikil streita er oft talin einn af þeim þáttum sem auka líkur á þunglyndi og kvíða. Ég spyr mig því hvort ekki sé mikilvægt að bjóða upp á fyrirbyggjandi aðstoð í Háskólanum,“ segir Jóhanna Bernhardsdóttir.

Þessi grein er byggð á frétt aga1 - aga1@hi.is, nemanda í MA-námi í frétta- og blaðamennsku. Greinin er birt í heild sinni á www.student.is.