Guðbjört Guðjónsdóttir, doktorsnemi við Félags- og mannvísindadeild
Guðbjört Guðjónsdóttir, doktorsnemi í mannfræði, rannsakar reynslu Íslendinga sem hafa flust til Noregs í leit að atvinnu í kjölfar efnahagshrunsins. Hún ber reynslu þeirra saman við reynslu Íslendinga sem fluttust út fyrir árið 2008. „Í rannsókninni er lögð áhersla á mismunandi þætti sjálfsmyndar og hvernig þeir skarast og móta reynslu fólks í tengslum við fólksflutningaferlið og á vinnumarkaði.“
Guðbjört Guðjónsdóttir
Guðbjört rannsakar reynslu Íslendinga sem hafa flust til Noregs í leit að atvinnu í kjölfar efnahagshrunsins. Hún ber reynslu þeirra saman við reynslu Íslendinga sem fluttust út fyrir árið 2008.

Guðbjört lagði áherslu á innflytjendur á Íslandi í meistaranámi sínu. „Í kjölfar þess velti ég fyrir mér hver reynsla Íslendinga væri af því að flytja til annarra landa hin síðari ár. Síðan kom efnahagshrun og Íslendingar fóru að flytjast í auknum mæli frá landinu, einkum til Noregs. Þar var komið kjörið rannsóknarefni.“
Guðbjört segir að almennt sé rannsóknum á fólksflutningum frekar beint að fólki sem flytur frá fátækum löndum í suðri til ríkari landa í norðri. „Mun sjaldnar eru skoðaðir fólksflutningar milli landa í Norður-Evrópu. Framlag minnar rannsóknar er því meðal annars fólgið í því að beina sjónum að innflytjendahópi sem lítil athygli hefur beinst að hingað til. Íslendingar koma frá ríku landi á hnattrænan mælikvarða og flytjast til annars efnaðs lands. Þeir hafa því ákveðna forréttindastöðu miðað við marga aðra innflytjendur þótt ekki megi gleyma því að þessir flutningar eiga sér stað í tengslum við kreppu.“
Leiðbeinandi: Kristín Loftsdóttir, prófessor við Félags- og mannvísindadeild.