Jóhanna Einarsdóttir, prófessor í Uppeldis- og menntunarfræðideild
Börn eru mikilvægir hagsmunaaðilar skólastarfs og af þeim sökum er eðlilegt að leita til þeirra við mat og rannsóknir á skólastarfi. Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er það einnig réttur barna að hlustað sé á þau og að tekið sé tillit til skoðana þeirra varðandi eigin málefni. Þetta segir Jóhanna Einarsdóttir, prófessor í menntunarfræði ungra barna og eigindlegri aðferðafræði, um rannsókn sem hún stendur fyrir á reynslu grunnskólabarna af námi í leikskóla. Rannsóknin er unnin með börnum í fyrsta bekk grunnskóla og er ætlunin að varpa ljósi á hvernig grunnskólabörn minnast leikskóladvalarinnar. Hugmyndin er að fá gögn um hvað þau telji sig hafa lært í leikskólanum, hvað þeim fannst skemmtilegt og hvað leiðinlegt, hvenær þeim leið vel, hvað þeim finnst ólíkt í grunnskóla og leikskóla og hvað þeim finnst koma að gagni í grunnskólanum.
Aðferðirnar sem notaðar eru við rannsóknina eru áhugaverðar og miða við þarfir og áhuga ungra barna. Þannig eru ekki einungis tekin viðtöl við börnin heldur teikna þau líka á meðan viðtölin fara fram. Talað er við börnin í litlum hópum þannig að þau hafi stuðning hvert af öðru. Rannsóknin byggist á þeirri sannfæringu að ung börn séu fær um að vera virkir þátttakendur. Þau hafi eigin rödd, skoðanir og áhuga. Enn fremur byggist rannsóknin á því að börn hafi rétt til að tjá skoðanir sínar og hafa áhrif á líf sitt og umhverfi. Í rannsókninni er markmiðið að sýna að börn séu jafnframt fullfær um að tjá viðhorf sín ef viðeigandi aðferðir eru notaðar við að nálgast þau.
Jóhanna Einarsdóttir
Börn eru mikilvægir hagsmunaaðilar skólastarfs og af þeim sökum er eðlilegt að leita til þeirra við mat og rannsóknir á skólastarfi. Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er það einnig réttur barna að hlustað sé á þau og að tekið sé tillit til skoðana þeirra varðandi eigin málefni.

Jóhanna segir þetta vera rannsókn sem tengist rétti barna og mikilvægi þess að hlustað sé á þau eins og annað fólk. „Það eru mannréttindi að börn geti haft áhrif á líf sitt og grundvallarþáttur lýðræðislegs samfélags. Það er því mikilvægt að börn fái tækifæri til að tjá skoðanir sínar með aðferðum sem henta þeim.“
Aukinn skilningur og þekking á sjónarmiðum barna eru mikilvægur grunnur stefnumörkunar í menntamálum. Þegar niðurstöður rannsóknarinnar liggja fyrir geta þær nýst stjórnendum og starfsfólki leikskóla við stefnumótun og þróun starfshátta. Rannsóknir hafa ekki verið gerðar hér á landi áður þar sem börn eru beðin að líta um öxl og meta áhrif leikskóladvalarinnar á líf sitt og nám. Rannsóknin mun því skapa nýja þekkingu á upplifun og reynslu barna af leikskólagöngunni.