Skip to main content

Reykingar hættulegar sjóninni

„Rannsókn mín snýst um faraldsfræði augnsjúkdóma aldraðra og hefur fengið heitið Augnrannsókn Reykjavíkur. Við skoðum einkum algengi, nýgengi og áhættuþætti fyrir þessa sjúkdóma og greinum hvaða forvarnaraðgerðir væru helst til bóta,“ segir Friðbert Jónasson, margverðlaunaður augnlæknir og prófessor við Læknadeild. Friðbert lauk prófi í faraldsfræði frá Edinborgar-háskóla árið 1977 og hefur haft brennandi áhuga á greininni æ síðan. Stóra Reykjavíkurverkefnið er samvinnuverkefni við japanska vísindamenn og fjármagnað að verulegu leyti frá Japan.

Þegar Friðbert skýrir rannsóknina víkur hann strax talinu að aðferðunum og nefnir að slembiúrtak úr þjóðskrá hafi verið notað yfir fólk 50 ára og eldra, fyrst árið 1996 „ ... en síðan voru þátttakendur skoðaðir aftur 2001 og svo enn á ný árið 2008. Helstu sjúkdómar eru ellihrörnun í augnbotnum, gláka, ský á augasteini og sjónlags- og starfsgallar augna.“

Friðbert Jónasson, prófessor við Læknadeild

„Í rannsókninni uppgötvuðum við til dæmis afar slæm áhrif reykinga en þær margfalda áhættuna á að fá blæðandi ellihrörnun í augnbotna og ský á augastein og við fundum fyrstir að þær valda einnig skemmdum á hornhimnu sem síðan getur gert hana ógagnsæja og þannig valdið blindu..."

Friðbert Jónasson

Friðbert er mikill frumkvöðull í rannsóknum sínum en segir að sumt sem hafi áður fundist erlendis hafi verið staðfest í Reykjavíkurverkefninu. Aðrar niðurstöður úr því séu hins vegar algerlega nýjar af nálinni en aðrir hafi síðan staðfest þær með sjálfstæðum rannsóknum erlendis. „Í rannsókninni uppgötvuðum við til dæmis afar slæm áhrif reykinga en þær margfalda áhættuna á að fá blæðandi ellihrörnun í augnbotna og ský á augastein og við fundum fyrstir að þær valda einnig skemmdum á hornhimnu sem síðan getur gert hana ógagnsæja og þannig valdið blindu. Þetta hefur nú verið staðfest í alþjóðlegum rannsóknum. Við fundum einnig til dæmis að útfjólubláir geislar sólar auka líkur á skýmyndun á augasteini. Þeir sem vinna utandyra og nota ekki gleraugu eða sólgleraugu eiga því sérstaklega á hættu að fá ský á augastein. Einnig vorum við með þeim fyrstu í heiminum til að finna að þunn hornhimna eykur stórlega hættu á gláku - skemmdum en þær niðurstöður okkar og annarra nýtast augnlæknum sem sinna glákusjúklingum um allan heim,“ segir Friðbert. „Við höfum í samvinnu við innlenda og erlenda vísindamenn nýlega fundið erfðaþætti sem tengjast þessum breytingum.“

Með Augnrannsókn Reykjavíkur hefur einnig verið lagður grunnur að ýmsum mikilvægum erfðafræðirannsóknum og hefur rannsóknin, sem von er, vakið heimsathygli en á fjórða tug alþjóðlegra vísindagreina hafa birst úr þessu stóra verkefni, margar þeirra í mest metnu augnvísindatímaritum heims. Friðbert segir að enn séu greinar á leiðinni í birtingu enda hafi gríðarlega mikil gagnasöfnun tengst rannsókninni „ ... og við erum enn að vinna úr þeim gögnum.“