Skip to main content

Rannsakar streitu í leikskólum

Ásdís Olga Sigurðardóttir, M.Ed.-nemi við Kennaradeild

„Rannsóknin snýst um álagsþætti og streitu hjá leikskólakennurum og hvað þeim finnst vera streita. Ég tók deildarstjóra sérstaklega fyrir en þeir voru í meirihluta þeirra sem svöruðu könnuninni sem lögð var fyrir,“ segir Ásdís Olga Sigurðardóttir, meistaranemi við Kennaradeild og starfsmaður Rannsóknastofu í menntunarfræðum ungra barna, um rannsókn sína. Markmið rannsóknarinnar er að skoða þá áhrifaþætti sem geta skapað streitu hjá deildarstjórum og finna út hvernig streita hefur áhrif á fagmennsku þeirra. Niðurstöður rannsóknarinnar eru unnar úr spurningakönnun og einstaklingsviðtölum sem rannsóknastofan lagði fyrir starfsfólk leikskóla á landsvísu.

Ásdís Olga Sigurðardóttir

„Rannsóknin snýst um álagsþætti og streitu hjá leikskólakennurum og hvað þeim finnst vera streita. Ég tók deildarstjóra sérstaklega fyrir en þeir voru í meirihluta þeirra sem svöruðu könnuninni sem lögð var fyrir“

Ásdís Olga Sigurðardóttir

Hugmyndin að rannsókninni kviknaði þegar Ásdís var í starfsnámi í leikskóla. „Mér fannst sums staðar ekki hægt að halda uppi góðu starfi í leikskólunum þar sem starfsfólkinu leið greinilega illa og var óánægt – og það finna börnin,“ segir Ásdís. Hún bendir á að fáar rannsóknir hafi verið gerðar hérlendis á streitu í leikskólum og því telur hún þetta kjörið tækifæri til að auka og dýpka þekkingu á viðfangsefninu. „Ég tel mikilvægt að það komi fram hvernig starfsumhverfið er í leikskólum landsins. Leikskólakennarar fá til að mynda ekki hádegishlé, bara kaffihlé í 35 mínútur á dag. Það kemur því ekki á óvart að fólk sé þreytt og pirrað,“ segir Ásdís.

Niðurstöðurnar sýna að eldri deildarstjórar á leikskólum finna fyrir neikvæðum tilfinningum í garð starfsins. Frumniðurstöður úr viðtölunum benda enn fremur til þess að þeir deildarstjórar sem höfðu bætt við sig námi væru mun glaðari í starfi en hinir. Námið styrkti þá í vinnunni og gerði þá jákvæðari gagnvart starfinu.

Ásdís segir að gildi rannsóknarinnar snerti samfélagið í heild. „Það er nauðsynlegt að gera alla meðvitaða um það sem veldur streitu og vanlíðan í starfi og koma þessu upp á yfirborðið þannig að hægt sé að takast á við það. Þegar starfsmanni líður illa minnkar fagmennskan og það kemur niður á starfinu. Við viljum hafa glaða deildarstjóra sem eru jákvæðir í starfi og líðan þeirra endurspeglast í börnum okkar,“ segir Ásdís.

Leiðbeinandi: Jóhanna Einarsdóttir, prófessor við Kennaradeild.