Særún Magnea Samúelsdóttir, doktorsnemi við Íslensku- og menningardeild
„Markmið verkefnisins er að rannsaka nýtingu og miðlun Íslendingasagna til almennings og ferðamanna á Íslandi og birtingarmynd þjóðernislegrar sjálfsmyndar Íslendinga í þessari miðlun. Ég ætla að kanna þá markhópa sem miðlun íslenskra miðaldabókmennta er beint að og þau minni sem lögð er áhersla á að miðla. Efnahagsleg áhrif þessarar miðlunar verða líka metin í þessu verkefni,“ segir Særún Magnea Samúelsdóttir, doktorsnemi við Íslenskuog menningardeild. Hún vinnur þessi misserin að doktorsverkefni sínu sem ber yfirskriftina „Íslendingasögurnar sem menningararfur – Bókmenntir, minningar, miðlun og ferðaiðnaður.“
Særún Magnea Samúelsdóttir
„Markmið verkefnisins er að rannsaka nýtingu og miðlun Íslendingasagna til almennings og ferðamanna á Íslandi og birtingarmynd þjóðernislegrar sjálfsmyndar Íslendinga í þessari miðlun.“

Særún segir kveikjuna að rannsókninni hafa verið meistaraverkefni í menningar- og menntastjórnun sem hún vann við Háskólann á Bifröst. „Þar kannaði ég viðhorf fagfólks í sögutengdri ferðaþjónustu til Íslendingasagna og miðlunar þeirra. Mér fannst sú rannsókn kalla fram fleiri spurningar en svör og ákvað því að vinna áfram með viðfangsefnið,“ segir Særún enn fremur.
Særún segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á miðaldabókmenntum. „Ég er með BA-gráðu í íslensku og þegar kom að því að velja framhaldsnám ákvað ég að reyna að hagnýta þennan áhuga minn og fara í stjórnunarnám. Ég hugðist svo reyna fyrir mér á einum þeirra fjölmörgu staða sem miðla Íslendingasögum hér á landi. Hins vegar voru niðurstöður meistaraverkefnisins þess eðlis að ég vildi rannsaka efnið betur,“ segir hún.
Særún segir að fræðilegt gildi rannsóknarinnar felist í að skapa nýja þekkingu sem hafi gildi á alþjóðavettvangi. „Rannsókn á efnahagslegum áhrifum hefur einnig samfélagslegt gildi þar sem ég mun leitast við að svara því hvort þjóðhagslega hagkvæmt sé að leggja almannafé í verkefni á þessu sviði,“ segir Særún.
Leiðbeinandi: Jón Karl Helgason, dósent við Íslensku- og menningardeild