Elísabet Ragna Hannesdóttir, doktorsnemi við Líf- og umhverfisvísindadeild
Doktorsneminn Elísabet Ragna Hannesdóttir rannsakar áhrif hita og næringarefnaauðgunar á samfélag smádýra í íslenskum lækjum. „Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á hugsanlegar breytingar sem hækkandi hiti getur haft á samfélög smádýra í straumvatni, hvað varðar þéttleika, tegundasamsetningu og lífsferla,“ segir Elísabet. Rannsóknin er einn angi af stóru evrópsku rannsóknaverkefni sem nefnist Eurolimpacs. Elísabet segir að áhrifin af hækkandi hita í Evrópulöndum, þar sem áburður er mikið notaður, gætu verið önnur og e.t.v. meiri en hér á landi.
Elísabet Ragna Hannesdóttir
Elísabet segir að Hengladalssvæðið sé kjörið til að rannsaka áhrif hita á lífverusamfélög í lækjum þar sem hitastig lækjanna sé mismunandi. Rannsóknin fólst í að skoða samfélag smádýra í níu lækjum ásamt því að áburðartilraunir voru gerðar.

Rannsókn Elísabetar fór að mestu fram í Hengladölum. Þar er jarðhitasvæði með bæði heitum og köldum lindum, allt frá 5 til 45 stiga heitum, sem sameinast síðan í Hengladalsá. Elísabet segir að Hengladalssvæðið sé kjörið til að rannsaka áhrif hita á lífverusamfélög í lækjum þar sem hitastig lækjanna sé mismunandi. Rannsóknin fólst í að skoða samfélag smádýra í níu lækjum ásamt því að áburðartilraunir voru gerðar.
Að sögn Elísabetar eru niðurstöður rannsóknarinnar þær að tegundasamsetning og þéttleiki smádýra er breytilegur milli lækjanna eftir hitastigi þeirra. Þannig voru sniglar ríkjandi í heitustu lækjunum en rykmý áberandi í þeim köldustu. Þá var þéttleiki smádýra almennt meiri í heitari lækjunum. Það kom einnig í ljós að áhrif áburðargjafar eru minniháttar á lífsskilyrði smádýra en hugsanlegt er að slík áhrif komi fram á lengri
tíma.
Elísabet segir að samfara hlýnun jarðar megi búast við miklum breytingum á samfélögum smádýra í ferskvatni; tegundir sem kjósa að lifa í köldu vatni gætu þurft að færa sig norðar eða upp til fjalla og tegundir sem kjósa hærri hita gætu orðið ríkjandi í stað hinna.
Leiðbeinandi: Gísli Már Gíslason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild.