Ágúst Mogensen, doktorsnemi við Félags- og mannvísindadeild
„Markmið rannsóknarinnar er að skoða við hvaða kringumstæður fólk, sem tekið er fyrir ölvunarakstur, tekur þá ákvörðun að aka ölvað og hvaða hugsunarferli á sér stað þegar ákvörðunin er tekin,“ segir Ágúst Mogensen, doktorsnemi í félagsfræði.
Í doktorsrannsókn sinni kannar hann m.a. hvaða spurninga ökumenn spyrja sig áður en þeir ákveða að aka ölvaðir og hvaða félagslegu og aðstæðubundnu þættir hafa áhrif á ákvörðunina.
Málið er Ágústi skylt enda hefur hann starfað sem forstöðumaður Rannsóknarnefndar umferðarslysa í allmörg ár og þekkir því vel hversu alvarlegar afleiðingar ölvunarakstur getur haft.
Ágúst Mogensen
„Ég vildi kafa dýpra í orsakir ölvunaraksturs og greina ástæðurnar fyrir honum. Fólk hefur gjarnan verið beðið um að ímynda sér hvernig það hugsar þegar það er ölvað en í þessari ritgerð voru þeir sem teknir voru fyrir ölvunarakstur spurðir beint út stuttu eftir að þeir voru teknir.“

„Ég vildi kafa dýpra í orsakir ölvunaraksturs og greina ástæðurnar fyrir honum. Fólk hefur gjarnan verið beðið um að ímynda sér hvernig það hugsar þegar það er ölvað en í þessari ritgerð voru þeir sem teknir voru fyrir ölvunarakstur spurðir beint út stuttu eftir að þeir voru teknir,“ segir Ágúst en slík rannsókn hefur ekki verið gerð áður hér á landi.
„Ég reikna með að klára ritgerðina á árinu 2013 og vona að hún nýtist bæði stjórnvöldum í forvarnastarfi og í háskólasamfélaginu til þess að endurbæta kenningar um ákvörðunartöku, sem byggjast, að mínu mati, ekki á nægjanlega góðum gögnum,“ segir Ágúst um gildi rannsóknarinnar. Mikilvægt sé að opna augu stjórnvalda fyrir sértækari úrræðum og forvörnum gegn ölvunarakstri en nú tíðkist.
Leiðbeinandi: Helgi Gunnlaugsson, prófessor við Félags- og mannvísindadeild.