Helga Ólafs, doktorsnemi við Félags- og mannvísindadeild
„Innflytjendur eru raunverulegur minnihlutahópur í íslenskum fjölmiðlum, sér í lagi sem viðmælendur í sjónvarpi og útvarpi,“ segir Helga Ólafs, doktorsnemi í félagsfræði, sem rannsakar umfjöllun fjölmiðla um innflytjendur.
Hugmyndin að rannsóknarverkefninu varð til í meistaranámi Helgu í blaða- og fréttamennsku þar sem hún ritstýrði samhliða náminu sérstöku fréttablaði fyrir innflytjendur á vegum Alþjóðahússins. „Þetta var á þeim tíma þegar fólksflutningar til landsins náðu hámarki og samfélagið var að fóta sig gagnvart hinum nýju íbúum.“
Helga Ólafs
„Innflytjendur eru raunverulegur minnihlutahópur í íslenskum fjölmiðlum, sér í lagi sem viðmælendur í sjónvarpi og útvarpi.“

Helga segir framsetningu frétta og orðræðu um innflytjendur geta skipt sköpum við aðlögun þeirra að íslensku samfélagi. „Fjölmiðlaumræðan er skoðanamyndandi og mótar þannig viðhorf meirihlutans til hinna nýju íbúa og einnig sjálfsmynd innflytjendanna, t.d. eftir því hvort þeir hafa fyrirmyndir í miðlunum þannig að þeir upplifi sig sem hluta af samfélaginu og hvernig umræða er um þá almennt. Enn fremur er áhugavert að skoða umræðuna í sögulegu ljósi og hvernig orðræðan hefur þróast. Um leið og fjölmiðlar búa til ímynd af minnihlutahópum eru þeir um leið að búa til ímynd af meirihlutanum.“
Rannsókn Helgu hefur m.a. leitt í ljós að innflytjendur sjálfir eru sjaldan viðmælendur fjölmiðla um málefni sín. Umfjöllun um innflytjendamál hefur minnkað töluvert eftir efnahagshrunið, sem og sýnileiki þessara íbúa landsins í miðlunum. Þá hafa íslenskir fjölmiðlar almennt ekki sett sér neina stefnu um menningarlega fjölbreytni.
Helga tekur virkan þátt í norrænu tengslaneti um fjölmiðla- og innflytjendarannsóknir. Hún segir tengslanetið mikilvægan vettvang til að fylgjast með því hvernig rannsóknir á sviðinu þróast og bera saman niðurstöður. Næsta verkefni Helgu er að koma á fót virku tengslaneti norrænna doktorsnema á sviðinu. Helga segir doktorsnámið hafa dýpkað skilning sinn á viðfangsefninu. „Ég tel orðræðu fjölmiðla afar mikilvæga fyrir innflytjendur en í raun snertir hún samfélagið í heild sinni. Það hefur einnig verið mjög þroskandi og gefandi að kynnast ýmsum sérfræðingum um allan heim sem eru að rannsaka þetta ört vaxandi svið.“
Leiðbeinendur: Helgi Gunnlaugsson og Þorbjörn Broddason, prófessorar við Félags- og mannvísindadeild.