Skip to main content

Orðaforði aukinn með aðferðum leiklistar

Ása Helga Ragnarsdóttir, aðjunkt við Kennaradeild

„Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort aðferðir leiklistar séu hentugar til að auka orðaforða nemenda á yngsta stigi grunnskóla,“ segir Ása Helga Ragnarsdóttir, aðjunkt við Kennaradeild, um rannsókn sem hún hefur unnið að ásamt Rannveigu Björk Þorkelsdóttur að undanförnu.

Ása segir að rannsóknin hafi þróast út frá annarri rannsókn þeirra Rannveigar sem nefnist „Skapandi nám í gegnum leiklist.“ „Markmið þeirrar rannsóknar var að kanna hvort leiklist sem kennsluaðferð hefði áhrif á nám barna. Niðurstöður benda til þess að aðferðir leiklistar henti almennt vel í námi þeirra sem eiga við námsörðugleika að stríða og þær virðast einnig gagnlegar fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál,“ bendir Ása á. Því hafi þeim leikið forvitni á að vita hvort aðferðir leiklistar gætu aukið orðaforða barna.

Ása Helga Ragnarsdóttir

„Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort aðferðir leiklistar séu hentugar til að auka orðaforða nemenda á yngsta stigi grunnskóla.“

Ása Helga Ragnarsdóttir

Farið var í fjóra grunnskóla og þar skoðaðir átta bekkir sjö ára barna. „Allir þátttakendur unnu með sömu sögur. Annar bekkurinn notaði aðferðir leiklistar í kennslu en hinn ekki. Í framhaldinu var svo metið hvort marktækur munur væri á því hversu orðaforði hefði aukist í bekkjunum,“ útskýrir Ása, sem sjálf er leiklistarmenntuð.

Frumniðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að kennsluaðferðin auki orðaforða nemenda umfram hefðbundnar kennsluaðferðir en Ása segir þær stöllur ekki hafa lokið endanlegri úrvinnslu gagna. 

Ása segir aðspurð að rannsóknin muni auka almenna þekkingu á áhrifum mismunandi kennsluaðferða á nám barna. „Gildi rannsókna í skólastarfi felst í að hafa áhrif á kennslu og bæta námsumhverfi með hagsmuni og þarfir nemenda að leiðarljósi. Niðurstöður  rannsóknarinnar verða vonandi til að auka þekkingu kennara á því hvort gagnlegt sé að nota aðferðir leiklistar í skólastarfi til þess að auka orðaforða og þroska nemenda.“