Skip to main content

Offita íslenskra barna eykst hratt

Alma Björk Guttormsdóttir, MPH í lýðheilsuvísindum

„Offita er alheimsvandamál og eitt af helstu viðfangsefnum 21. aldarinnar. Þetta vandamál kallar á áhrifaríkar forvarnaaðgerðir og áætlanir varðandi þyngdarstjórnun. Mjög mikilvægt er að fólk taki ábyrgð á eigin heilsu, ekki síst til að sporna við ýmsum áhættuþáttum sem fylgja offitu. Offita getur haft alvarlegar afleiðingar, eins og háþrýsting, sykursýki af tegund tvö, hjarta- og æðasjúkdóma og margs konar krabbamein,“ segir Alma Björk Guttormsdóttir, MPH í lýðheilsuvísindum.

Alma Björk Guttormsdóttir

„Rannsóknir hafa sýnt að offita íslenskra barna eykst hratt. Svo er komið að íslensk börn eru með þeim þyngri í Evrópu en við erum enn undir þeim mörkum sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin setur hvað
offitufaraldur varðar.“

Alma Björk Guttormsdóttir

Hún lauk meistaraverkefni sínu í lýðheilsuvísindum á haustdögum en það fjallar um offitu íslenskra barna. „Rannsóknir hafa sýnt að offita íslenskra barna eykst hratt. Svo er komið að íslensk börn eru með þeim þyngri í Evrópu en við erum enn undir þeim mörkum sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin setur hvað offitufaraldur varðar,“ bætir Alma við.

Alma segir að hún hafi lengi haft áhuga á forvörnum og þegar Miðstöð í lýðheilsuvísindum var sett á laggirnar við Háskóla Íslands haustið 2007 skellti hún sér í námið. Hún var þá staðráðin í að rannsaka þætti tengda offitu.

Við rannsókn Ölmu voru tekin viðtöl við tólf foreldra níu ára barna á höfuðborgarsvæðinu, sem mældust of feit við upphaf rannsóknarinnar og einnig við upphaf skólagöngu.

„Í þessum viðtölum komu fram ýmsar ábendingar um úrræði. Foreldrarnir óskuðu t.d. eftir því að fá aðgang að næringarfræðingi á viðkomandi heilsugæslustöð sem gæti aðstoðað foreldra við að kaupa og elda næringarríkan mat. Jafnframt töluðu foreldrarnir um að börnin hefðu byrjað að þyngjast þegar þau hófu skólagöngu. Því mætti ætla að skólahjúkrunarfræðingar ættu að boða öll börn og foreldra í viðtal við upphaf skólagöngu til að fara yfir þætti sem tengjast heilbrigðum lífsstíl,“ segir Alma.

„Foreldrarnir í rannsókninni hefðu viljað fá ábendingu fyrr frá skólahjúkrunarfræðingi, þegar fyrirséð var hvert þyngdin stefndi samkvæmt reglulegum þyngdar- og hæðarmælingum.“

Alma segist fyrst og fremst vonast eftir því að niðurstöður rannsóknarinnar komi til með að nýtast starfsfólki heilbrigðis- og skólakerfisins, „bæði til að þróa forvarnir gegn offitu og leiðbeina um hvernig best sé hægt að aðstoða of feit börn og foreldra þeirra til að takast á við vandann,“ segir Alma.

Leiðbeinandi: Helga Sif Friðjónsdóttir, lektor við Hjúkrunarfræðideild.