Óla Kallý Magnúsdóttir, doktorsnemi við Matvæla- og næringarfræðideild
„Mikilvægt er að nýta betur þau hráefni sem hægt er að rækta og afla á norðlægum slóðum frekar en að auka innflutning matvæla frá suðlægari svæðum,“ segir Óla Kallý Magnúsdóttir, doktorsnemi í næringarfræði, sem hlaut nýlega styrk frá Rannís til tveggja ára.
Óla Kallý Magnúsdóttir
Óla hefur rannsakað heilkorna- og trefjaneyslu í hollu norrænu mataræði sem samanstendur meðal annars af heilu korni, ávöxtum, grænmeti og berjum, sérstaklega þeim sem vaxa á norðlægum slóðum, fiski, mögrum kjötvörum og repjuolíu.

Hún hefur rannsakað heilkorna- og trefjaneyslu í hollu norrænu mataræði sem samanstendur meðal annars af heilu korni, ávöxtum, grænmeti og berjum, sérstaklega þeim sem vaxa á norðlægum slóðum, fiski, mögrum kjötvörum og repjuolíu. „Nýlegar rannsóknir benda til þess að hollt norrænt mataræði geti haft góð áhrif á heilsu og heilkornaneysla hefur verið tengd minni áhættu á sykursýki 2 og betri blóðsykursstjórnun en annað algengt mataræði,“ segir Óla Kallý.
Hún bendir á að lífvísar fyrir fæðuinntöku, þ.e. efni úr matvælum sem hægt er að mæla í blóði eftir að þeirra er neytt, hafi opnað nýjar leiðir fyrir rannsóknir í næringarfræði en með lífvísum er hægt að kanna virkni matvæla og næringarefna, jafnvel þó að þau séu hluti af flóknu mataræði. Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að hægt sé að nota alkylresorcinol, sem finnst í klíði heilhveitis og rúgs, sem lífvísi í hollu norrænu mataræði og stefnt er að því að meta tengsl heilkorns við blóðsykursstjórnun og sykursýki 2 með því að nota lífvísi.
Leiðbeinandi: Inga Þórsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild og forseti Heilbrigðisvísindasviðs.