Vivek S. Gaware, doktorsnemi við Lyfjafræðideild
Rannsókn á nýrri meðhöndlun krabbameins, sem Vivek S. Gaware doktorsnemi við Háskóla Íslands vinnur að frekari þróun á í samstarfi við erlenda aðila, hefur vakið gríðarlega athygli í Bretlandi. Fjallað var um rannsóknina í breska blaðinu The Times.
Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar gefa góð fyrirheit um að unnt sé að vinna bug á ýmsum krabbameinum í höfði og hálsi sem áður voru talin ill- eða ólæknanleg. Rannsóknin er gerð á vegum norsks fyrirtækis, PCI Biotech, og er unnin af læknum við University College Hospital í London.
Vivek S. Gaware
Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar gefa góð fyrirheit um að unnt sé að vinna bug á ýmsum krabbameinum í höfði og hálsi sem áður voru talin ill- eða ólæknanleg.

Rannsóknin snýst um að beita nýrri tækni við krabbameinsmeðferð. Ellefu sjúklingar með langt komið krabbamein tóku þátt í rannsókninni. Nýju rannsóknarlyfi, Amphinex, var sprautað í æð nokkrum dögum áður en sjúklingurinn hlaut hefðbundna lyfjameðferð. Amphinex hefur þá náttúru að örva ljósstýrða upptöku lyfja í krabbameinsfrumur.
Í kjölfar lyfjameðferðarinnar var ljósi beint að krabbameinsæxlinu og við það jókst til muna virkni lyfjameðferðarinnar. Meðhöndluð æxli hurfu og engar alvarlegar aukaverkanir komu fram í rannsókninni.
Vivek er einn níu starfsmanna PCI Biotech, en leiðbeinandi í verkefni hans er Már Másson prófessor. Rannsóknaverkefni Viveks miðar að frekari þróun á þessari nýstárlegu meðferð. Norska fyrirtækið á í samvinnu við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands og er með starfsstöð hér á landi.