Skip to main content

Nepalskar konur á ferð og flugi

Ása Guðný Ásgeirsdóttir, doktorsnemi við Félags- og mannvísindadeild

Lítið hefur verið fjallað um flutninga nepalskra kvenna milli landa þrátt fyrir að þeir hafi mikið færst í vöxt á síðustu árum. Ása Guðný Ásgeirsdóttir, doktorsnemi í mannfræði, vinnur nú að rannsókn um fólksflutninga meðal nepalskra kvenna með áherslu á kyngervi og þjóðerni. „Ég mun bæði rannsaka hóp nepalskra kvenna sem búa á Íslandi og á upprunasvæði þeirra í Nepal,“ segir Ása Guðný.

Ása Guðný Ásgeirsdóttir

Ása Guðný vinnur nú að rannsókn um fólksflutninga meðal nepalskra kvenna með áherslu á kyngervi og þjóðerni. „Ég mun bæði rannsaka hóp nepalskra kvenna sem búa á Íslandi og á upprunasvæði þeirra í Nepal.“

Ása Guðný Ásgeirsdóttir

Hún leggur áherslu á að rannsaka hvaða áhrif þjóðerni og félagsleg og efnahagsleg staða kvennanna hafi á möguleika þeirra til að flytja á brott og hvernig þær aðlagast því umhverfi sem þær flytja inn í. Þá vill hún einnig skoða hvort samskipti kynjanna og hugmyndir fólks um kyngervi breytist í ferlinu og hvaða áhrif þessir fólksflutningar hafi á fólkið sem eftir verður.

„Í meistararannsókn minni fjallaði ég um nepalskar konur sem voru seldar mansali til Indlands og vildi í kjölfarið afla meiri upplýsinga um flutninga nepalskra kvenna frá Nepal. Oft er fjallað um þessi viðfangsefni í sömu andrá sem veldur því að umræðan verður einsleit,“ segir Ása Guðný.

Enn sem komið er liggja niðurstöður ekki fyrir en hún vonast til að rannsóknin varpi ljósi á stöðu nepalskra kvenna á Íslandi, sem og ástæður þeirra og möguleika á að fara frá Nepal. Ása Guðný telur rannsóknina einnig munu bæta við sífellt vaxandi rannsóknir á hreyfanleika og þverþjóðleika. „Það er líka mikilvægt að fá upplýsingar um þær konur sem flytjast til Íslands og skilja upplifanir þeirra svo að hægt sé að taka enn betur á móti þeim sem hafa hug á að flytja hingað,“ bendir Ása Guðný á að lokum. 

Leiðbeinandi: Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor við Félags- og mannvísindadeild.