Skip to main content

Nemar þurfa að hreyfa sig

Erlingur Birgir Richardsson, meistaranemi í íþrótta- og heilsufræði

„Nær einn af hverjum fjórum er of þungur og helmingur með of hátt fituhlutfall,“ segir Erlingur Birgir Richardsson, meistaranemi í íþrótta- og heilsufræði, sem rannsakar heilsu 18 ára framhaldsskólanema. Meistaraverkefni Erlings er hluti af viðamikilli rannsókn á heilsu og lífsstíl framhaldsskólanema sem Sigurbjörn Árni Arngrímsson, dósent í íþrótta- og heilsufræði, stýrir. Þátttakendur í rannsókninni eru 277 nemar úr þremur framhaldsskólum í Reykjavík. Heilsa nemanna var könnuð með því að skoða alla helstu áhættuþætti fyrir hjarta- og æðasjúkdóma eins og þol, blóðfitu, blóðsykur, líkamsfitu, blóðþrýsting og hreyfingu.

Erlingur Birgir Richardsson

„Nær einn af hverjum fjórum er of þungur og helmingur með of hátt fituhlutfall.“

Erlingur Birgir Richardsson

„Það kemur mér á óvart hversu margir eru of þungir og of feitir og hversu lítið þeir hreyfa sig. Hlutfall þeirra sem eru of þungir, þ.e. 23% út frá BMI-stuðli, er samt í takt við niðurstöður rannsókna á öðrum aldurshópum á Íslandi. Það sem er kannski athyglisverðast er hversu gott þol þeirra mælist, þrátt fyrir hversu þung og feit þau eru og hreyfa sig lítið,“ segir Erlingur og bætir við að ástæðan sé hugsanlega sú að á þessum árum nær þolið hámarki, þ.e. hjarta- og æðastarfsemin er upp á sitt besta.

Í rannsókninni koma nemarnir vel út hvað varðar þol og þá sérstaklega strákarnir. Innan við 10% stráka flokkast með lélegt þol en 22% stúlkna. Þrátt fyrir það ná 64,2% stúlkna og 67,6% stráka ekki ráðleggingum um hreyfingu upp á 10.000 skref eða fleiri að jafnaði á dag. Aðeins 34,4% nemenda ná þeirri hreyfingu.

„Offita og kyrrseta hafa aukist mikið á undanförnum árum ásamt sjúkdómum þeim tengdum. Mig langaði að skoða sérstaklega líkamsástand þessa aldurshóps þar sem hann hefur lítið verið kannaður og engar rannsóknir er að finna á Íslandi sem fjalla um heilsu þessa hóps á eins víðtækan hátt og í rannsókn minni,“ segir Erlingur. Hann vonast til að hægt verði að nýta niðurstöðurnar til að skipuleggja og þróa mótvægisaðgerðir til að draga úr vandamálum tengdum offitu og hreyfingarleysi.

Erlingur lauk meistaranámi sínu árið 2010.