Skip to main content

Nauðsynlegt að rödd barnsins heyrist

Guðrún Jónsdóttir, MA frá Félagsráðgjafardeild

„Niðurstöðurnar gefa til kynna að sjónarmið barna séu ekki sýnileg þrátt fyrir að oftast sé töluverð áhersla lögð á hagsmuni þeirra og réttindi,“ segir Guðrún Jónsdóttir sem útskrifaðist með MA-gráðu í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands haustið 2010. Í meistaraverkefni sínu rannsakaði hún hvernig vísað er til hagsmuna og sjónarmiða barna í textum dómskjala. Tilvikin sem Guðrún kannaði voru kröfur barnaverndarnefndar um tímabundna vistun utan heimilis eða forsjársviptingu sem teknar voru fyrir í dómskerfinu á árunum 2002 til 2009.

Guðrún Jónsdóttir

„Niðurstöðurnar gefa til kynna að sjónarmið barna séu ekki sýnileg þrátt fyrir að oftast sé töluverð áhersla lögð á hagsmuni þeirra og réttindi.“

Guðrún Jónsdóttir

„Samkvæmt barnaverndarlögum og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á að ræða við börn um málefni sem þau varðar og fá fram sjónarmið þeirra með hliðsjón af aldri þeirra og þroska. Þrátt fyrir þetta var einungis rætt við u.þ.b. helming barnanna og virtist sem stundum væri einungis rætt við þau til málamynda án þess að sjónarmið þeirra væru tekin til raunverulegrar umfjöllunar,“ segir Guðrún.

Guðrún starfar hjá Fjölskyldu- og fræðslusviði Vestmannaeyja. Hún segir að þar og víðast hvar annars staðar hjá félagsþjónustu sveitarfélaga sé barnavernd fyrirferðarmikill hluti starfsins. Út frá því hafi áhugi hennar á að rannsaka málefni á sviði barnaverndar vaknað. Þó að einungis lítill hluti barnaverndarmála fari fyrir dómstóla eru þau mál um margt einkennandi fyrir barnaverndarstarf en þar eru á ferðinni mál sem hafa oft verið lengi í vinnslu hjá barnaverndaryfirvöldum. „Þegar um jafn íþyngjandi ákvörðun er að ræða og að fara fram á vistun barns án samþykkis foreldra eða barns reynir sérstaklega á það að gæta að sjónarmiðum og hagsmunum barnsins,“ segir Guðrún.

Hún segir rannsóknina sýna fram á nauðsyn þess að taka meira tillit til sjónarmiða barna í málefnum þeirra, s.s. í barnaverndarstarfi, og finna leiðir til að stuðla að valdeflingu þeirra.

Leiðbeinandi: Anni Haugen, lektor við Félagsráðgjafardeild.