Skip to main content

Ná réttmætri mynd af stami

Kirstín Lára Halldórsdóttir, MS í talmeinafræði

Kirstín Lára Halldórsdóttir lauk meistaraprófi í talmeinafræði frá Háskóla Íslands með verkefni um breytileika í stami barna á leikskólaaldri. Niðurstöður hennar sýna hvernig best er að ná fram réttmætri mynd af grunnskeiði stams en slík mynd getur gagnast við val á meðferð og túlkun á árangri meðferðarinnar.

Kirstín Lára Halldórsdóttir

„Stam er mjög mismikið og misalvarlegt hjá sama einstaklingi frá einu skipti til annars en nákvæmar ástæður þess eru ókunnar. Markmiðið með rannsókninni var að skoða hvort þessi breytileiki kæmi til vegna utanaðkomandi áhrifaþátta.“

Kirstín Lára Halldórsdóttir

„Stam er mjög mismikið og misalvarlegt hjá sama einstaklingi frá einu skipti til annars en nákvæmar ástæður þess eru ókunnar. Markmiðið með rannsókninni var að skoða hvort þessi breytileiki kæmi til vegna utanaðkomandi áhrifaþátta,“ segir Kirstín Lára. Leiðbeinandi hennar, Jóhanna Thelma Einarsdóttir, vakti athygli á viðfangsefninu. „Það má segja að smitandi áhugi hennar hafi verið kveikjan að verkefninu en Jóhanna hefur lengi starfað með börnum og fullorðnum sem stama og því voru hæg heimatökin við að finna þátttakendur.“

Kirstín Lára segir að viðfangsefni talmeinafræðinnar séu nánast ótæmandi og að í náminu hafi nemendur kynnst því vel. „Stam er flókin taugafræðileg talröskun, sem snertir bæði börn og fullorðna. Mér þótti spennandi að skoða viðfangsefnið nánar og sé ekki eftir því.“

Niðurstöður verkefnisins sýndu að breytileiki í tíðni stams kom fram, þrátt fyrir að líklegum áhrifabreytum úr umhverfinu væri haldið stöðugum. Málsýni voru tekin upp við sömu aðstæður, af sama viðmælanda og börnin fengust alltaf við sömu verkefni. „Þetta gefur vísbendingu um að breytileiki sé eðlislægur hluti af einkennum stams sem verði ekki stýrt af umhverfinu.“

Leiðbeinandi: Jóhanna Thelma Einarsdóttir, dósent í talmeinafræði.