Álfhildur E. Þorsteinsdóttir talmeinafræðingur rannsakaði nýverið sjálfsprottið tal íslenskra leikskólabarna á aldrinum 3–5 ára. Tal barnanna var tekið upp, afritað og greint nánar. Þá skoðaði hún ýmis atriði í máli þeirra, lengd setninga, fjölbreytileika í orðaforða, fjölda málfræðivillna og fjölmörg málfræðiatriði, svo sem hvaða orðflokka þau nota.
Álfhildur E. Þorsteinsdóttir
„Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að mikið gerist í málþroskanum hjá börnum á þessum aldri, setningar lengjast og fjölbreytni orðaforðans vex. Villum fækkar með aldrinum en orðflokkanotkun breytist lítið, börnin nota sagnorð mest á öllum aldursbilum.....“

Í talmeinafræðinámi hennar var mikil áhersla lögð á að skoða sjálfsprottið tal barna samhliða því að leggja fyrir stöðluð próf. „Mér þótti þetta viðfangsefni alltaf spennandi og komst að því að mikil þörf var á rannsóknum á sjálfsprottnu tali íslenskra barna,“ segir hún. Þegar leiðbeinandi hennar, Jóhanna Thelma Einarsdóttir, stakk upp á því að hún gerði um það meistaraverkefni ákvað hún að slá til þar sem henni þótti viðfangsefnið mjög áhugavert. Jóhanna var þá byrjuð að safna málsýnum sem Álfhildur fékk að nota og bætti einnig við þau.
„Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að mikið gerist í málþroskanum hjá börnum á þessum aldri, setningar lengjast og fjölbreytni orðaforðans vex. Villum fækkar með aldrinum en orðflokkanotkun breytist lítið, börnin nota sagnorð mest á öllum aldursbilum. Notkun þátíðar eykst með aldrinum og börnin nota þolfall meira með aldrinum og nefnifall minna. Jóhanna hefur unnið áfram með þetta efni, stækkað úrtakið og skoðað breiðara aldursbil. Þegar þær niðurstöður birtast verða viðmiðin áreiðanlegri,“ útskýrir Álfhildur.
„Rannsóknin getur nýst talmeinafræðingum í starfi sínu. Þeir hafa nú íslensk viðmið til að styðjast við þegar þeir taka málsýni og greina málþroska barna. Einnig tel ég rannsóknina skipta máli fyrir alla þá sem rannsaka málþroska barna og málfræði og þá sem skipuleggja málörvun leikskólabarna,“ segir hún.
Leiðbeinandi: Jóhanna Thelma Einarsdóttir, dósent í talmeinafræði.