Skip to main content

Málnotkun í tölvusamskiptum

Vanessa Monika Isenmann, doktorsnemi í íslenskri málfræði

„Reglur hefðbundins ritmáls eiga ekki endilega við í rituðum tölvusamskiptum heldur er þar hugsanlega komið nýtt málbrigði eða málsnið ritaðrar íslensku, sem er þá blanda talmáls, ritmáls og táknmáls, sem fylgir nýjum reglum málnotkunar,“ segir Vanessa Monika Isenmann, doktorsnemi í íslenskri málfræði. 

Í hnotskurn fjallar rannsókn Vanessu um málnotkun og einkenni hennar í tölvusamskiptum á Íslandi. Vanessa segir þróun nýrra táknforma og stíleinkenna einkennast af óformlegri málnotkun og fyrirbærum sem tengjast rafrænum samskiptum, til dæmis brosköllum.

Vanessa Monika Isenmann

Vanessa segir þróun nýrra táknforma og stíleinkenna einkennast af óformlegri málnotkun og fyrirbærum sem tengjast rafrænum samskiptum, til dæmis brosköllum.

Vanessa Monika Isenmann

Vanessa tók eftir því að fólk „talar“ öðruvísi saman þegar samskiptin fara í gegnum tölvur. „Ég tók eftir því að fólk er mjög skapandi í tölvusamskiptum, t.d. nota margir tákn. Þetta er kveikjan að rannsóknarverkefninu ásamt því auðvitað að Netið gegnir sívaxandi hlutverki í lífi fólks,“ segir hún. Sem dæmi má nefna að samkvæmt World Statistics eru 67,2% Íslendinga skráðir notendur á Facebook og þeim fjölgar enn. 

Vanessa væntir þess að rannsóknin leiði í ljós að tölvusamskipti hafi hugsanlega leitt til myndunar nýs málbrigðis eða málsniðs ritaðrar íslensku. „Tölvusamskipti eru allt í senn blanda af talmáli, ritmáli og táknmáli og fylgja eigin reglum um málnotkun. Samskipti okkar um tölvur verða sífellt meiri. Rannsókninni er ætlað að lýsa rituðum tölvusamskiptum, sem vissulega eru nýtt óformlegt afbrigði ritaðs máls, og greina þau,“ segir hún. 

Leiðbeinandi: Kristján Árnason, prófessor við Íslensku- og menningardeild.