Fanney Birna Jónsdóttir, MA í lögfræði
„Fólk hefur tilhneigingu til að tjá sig með óheflaðri hætti á Netinu og núgildandi löggjöf um prent- og ljósvakamiðla nær ekki yfir ærumeiðingar netnotenda nema að takmörkuðu leyti,“ segir Fanney Birna Jónsdóttir, magister juris og lögfræðingur hjá Opus lögmönnum. Fanney skrifaði meistararitgerð um friðhelgi einkalífs og æruvernd á Netinu og nýtur þess í starfi að hafa sérhæft sig í þessum málaflokki.
Að sögn Fanneyjar hefur ágreiningur verið uppi um hvort hægt sé að nota gildandi lög um prentmiðla annars vegar og ljósvakamiðla hins vegar til að sporna við ærumeiðingum á Netinu. „Lögin gera ráð fyrir ákveðinni ábyrgðarröð sem nær líklegast ekki til bloggara. Þeir lúta hvorki valdi ritstjóra né eiganda og í mörgum tilfellum getur reynst erfitt að staðreyna hver bloggarinn er,“ segir Fanney.
Fanney Birna Jónsdóttir
Fanney skrifaði meistararitgerð um friðhelgi einkalífs og æruvernd á Netinu og nýtur þess í starfi að hafa sérhæft sig í þessum málaflokki.

„Gildandi lög ná þó að mestu yfir íslenska fréttamiðla á Netinu enda eru þeir oftast skipulagðir eins og hefðbundnir prentmiðlar. Hins vegar er óljóst hver ber ábyrgð á bloggskrifum um frétt vegna þess að lögin gera ekki ráð fyrir slíkri gagnvirkni. Staðan flækist enn meira í þeim tilfellum þar sem notandinn er ekki skráður undir réttri kennitölu. Erfiðast er að koma böndum á bloggvefi í útlöndum þar sem notendur skrá sig gjarnan undir leyninafni.“
Fanney segir að löggjafanum sé í raun vorkunn þar sem hann er dæmdur til að vera alltaf skrefinu á eftir hraðri tækniþróun. „Enn hefur ekki verið skilgreint með afgerandi hætti hvort Internetið flokkast sem hefðbundinn fjölmiðill eða hvort um er að ræða nýjan vettvang sem þarfnast nýrrar löggjafar. Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að okkur skortir nýja löggjöf,“ segir Fanney að lokum.
Leiðbeinandi: Páll Sigurðsson, prófessor við Lagadeild.