Irina Domurath, doktorsnemi við Lagadeild
„Hin alþjóðlega efnahagskreppa leiddi í ljós mikla galla á núgildandi reglum um neytendavernd og fjármálaþjónustu, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Frá hruninu hér á landi hafa íslenskir neytendur átt í erfiðleikum með að greiða af skuldum sínum, ekki síst húsnæðisskuldum,“ segir Irina Domurath laganemi um doktorsverkefni sitt. Þar tekst hún á við neytendalöggjöf Evrópusambandsins með tilliti til neytendalána og húsnæðislána.
Irina Domurath
Í doktorsverkefni sínu fjallar Irina um neytendalöggjöf Evrópusambandsins með tilliti til neytendalána og húsnæðislána.

Irina er í hópi þeirra fyrstu til þess að skrá sig í nám til nýrrar, sameiginlegrar doktorsgráðu frá Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla. Hún bendir á að skortur sé á rannsóknum og þekkingu á samspili neytendastefnumótunar, fjármálaþjónustu, neytendalána og húsnæðislána og við því vilji hún bregðast. „Það þarf að dýpka umræðuna, bæði á Íslandi og innan Evrópusambandsins, um neytendalán og þá sérstaklega húsnæðislán í eftirleik efnahags- og fjármálakreppunnar. Til þess að umræðan verði árangursrík þarf að rannsaka nánar hlutverk neytenda og samninga sem þeir gera á innri markaði Evrópusambandsins,“ bendir Irina á.
Eitt af því sem Irina leggur sérstaka áherslu á er að tengja betur löggjöf um neytenda- og húsnæðislán við þróun almennrar neytendalöggjafar og þá ekki síst hvernig ná megi félagslegu réttlæti í löggjöfinni. „Í rannsókninni mun ég enn fremur nálgast löggjöf um neytendalán og húsnæðislán á nýjan hátt með því að tengja hana hugtökum eins og sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja í fjármálageiranum,“ segir Irina.
Þá hefur Irina í hyggju að leggja til ný viðmið um vernd á sviði neytendalána- og húnæðislánalöggjafar. „Markmiðið er því að finna hvata að bættri neytendavernd á þessu sviði bæði á Íslandi og í Evrópusambandinu,“ segir Irina sem þegar hefur ritað eina vísindagrein byggða á rannsóknum sínum. Þar leggur hún til miklar breytingar á neytendalöggjöf Evrópusambandsins þar sem tekið yrði tillit til mismunandi þarfa fyrir neytendavernd eftir sviðum neytendamála.
Leiðbeinendur: Maria Elvira Mendéz Pinedo, prófessor við Lagadeild, og Peter Rott, lektor í lögfræði við Kaupmannahafnarháskóla.