Skip to main content

Kynheilbrigðisþjónustu skortir fyrir ungt fólk

Sóley S. Bender, prófessor við Hjúkrunarfræðideild

„Til þess að ná góðum árangri í kynheilbrigðismálum ungs fólks þurfum við samfélagslegt inngrip margra aðila á ýmsum stigum. Við þurfum að byggja unga fólkið okkar upp, það byrjar ungt að stunda kynlíf og fær ekki nógu góða kynheilbrigðisþjónustu. Þróun slíkrar þjónustu þarf að taka mið af sjónarmiðum ungs fólks.“

Þetta segir Sóley S. Bender, prófessor og forstöðumaður fræðasviðs um kynheilbrigði við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Landspítalann. Sóley hefur í áratugi rannsakað kynheilbrigðismál ungs fólks á Íslandi.

Sóley S. Bender

Sóley segir að niðurstöður þessarar fyrstu könnunar hafi verið nýttar við að þróa unglingamóttökur í samræmi við óskir sem fram komu hjá unga fólkinu.

Sóley S. Bender

„Landskönnun á viðhorfum ungs fólks til sérhæfðrar þjónustu á sviði kynlífs og barneigna var framkvæmd árið 1996 og var hún fyrsta könnun sinnar tegundar hér á landi. Í þeirri rannsókn kom fram að meðalaldur ungs fólks á Íslandi þegar það byrjar að stunda kynlíf var 15,4 ár, sem er fremur ungt miðað við nágrannalönd. Niðurstöðurnar gáfu jafnframt til kynna að miklu skiptir fyrir ungt fólk að hafa aðgang að kynheilbrigðisþjónustu þar sem trúnaður og virðing ríkir.“

Sóley segir að niðurstöður þessarar fyrstu könnunar hafi verið nýttar við að þróa unglingamóttökur í samræmi við óskir sem fram komu hjá unga fólkinu. Árið 2009 endurtók Sóley þessa rannsókn hjá svipuðum aldurshópi. Niðurstöður þeirrar rannsóknar sýndu að meðalaldur við fyrstu kynmök var kominn í 15,8 ár. Eindreginn samhljómur var við niðurstöðurnar frá 1996 um að mikil þörf væri fyrir
svona þjónustu og að gæði hennar skiptu miklu máli.

„Niðurstöðurnar segja okkur skýrt að þegar þjónusta fyrir ungt fólk á þessu sviði er þróuð þurfum við að huga að gæðum hennar. Það er mikilvægt að ungt fólk finni fyrir öryggi, virðingu og trausti við þessar aðstæður. Gæði og fagmennska þarf að fara saman því það eykur líkur á því að þau sem þurfa á þjónustunni að halda leiti í hana.“

Tengt efni