Skip to main content

Krossaspurningar á Netinu hjálpa í námi

Gunnar Stefánsson, prófessor við Raunvísindadeild

„Verkefnið Vefstudd kennsla fjallar um aðferðir til að bæta kennslu með hjálp tóla sem eru gerð aðgengileg og öllum opin á vefnum,“ segir Gunnar Stefánsson, prófessor í tölfræði, um verkefni sem hann vinnur að um þessar mundir.

Gunnar Stefánsson

„Verkefnið Vefstudd kennsla fjallar um aðferðir til að bæta kennslu með hjálp tóla sem eru gerð aðgengileg og öllum opin á vefnum“

Gunnar Stefánsson

Úrræðið byrjaði hann að þróa vegna slæmra skila hjá nemendum í ýmsum námskeiðum háskólans. „Stærsti liður verkefnisins fjallar um gerð og úthlutun krossaspurninga á vef. Fyrstu niðurstöður mælinga eru þær að úthlutun slíkra krossaspurninga geti komið að einhverju leyti í stað heimaverkefna án þess að rýra gæði kennslunnar eða áhuga nemenda, en þeir vilja  langflestir helst blöndu af vefefni og skiladæmum. Þar sem vefkerfið er öllum opið geta nemendur úr öðrum landshlutum og jafnvel heimsálfum nálgast efnið og notað t.d.  krossaspurningar til að æfa sig. Verkefnið kemur ekki í stað fjarnáms og er einungis hugsað sem vefstutt nám,“ bendir Gunnar á.

Gunnar segir að efnið sé flokkað eftir fyrirlestrum og biðja megi ítrekað um krossaspurningar úr tilteknum fyrirlestri, til dæmis þar til ákveðinni einkunn er náð. „Úthlutun spurninganna fer eftir kunnáttu nemandans og því verður þetta einstaklingsmiðað nám,“ segir Gunnar.

Verkefnið er liður í stærra framhaldsverkefni en þar verður reynt að setja upp allt efni til BS-prófs í stærðfræði og meistaraprófs í hagnýttri tölfræði á vefnum. Tilraunir verða gerðar á notkun kerfisins í þróunarlöndum, m.a. í Kenýa, að sögn Gunnars. Hann segir að nokkrar spurningar séu samdar úr námsefninu á hverju ári og þannig bætist sífellt í spurningasafnið þegar fram líða stundir.