Skip to main content

Kristin siðfræði og kynlífið

Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild

„Mér finnst mikilvægt að vinna með efni sem tengja má gildum réttlætis og kærleika í samfélagi  okkar. Þessi gildi eiga sér bakland í biblíulegum ritum og frásögnum og eiga fullt erindi við okkur í dag. Þrátt fyrir ýmsan neikvæðan farangur hefur kristin kynlífssiðfræði mikilvæg sjónarmið fram að færa þegar rætt er um samfélagslegt réttlæti og kærleika.“ Þetta segir Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent í trúarbragðafræði, um afar áhugaverða rannsókn sem hún vinnur nú að. Rannsóknin snertir beint fræðasvið Sólveigar Önnu á sviði kynlífssiðfræði.

Að hennar sögn ganga guðfræðilegar og siðfræðilegar rannsóknir út á textatúlkun og gagnrýnið samtal við sögu og samtíð. Sólveig hefur ítrekað bent á hvernig kristin siðfræði þurfi að endurskoða sjálfa sig. Hún hefur enn fremur leitast við að fanga kosti kristinnar siðfræði og fært að því rök hvernig hún geti stutt við kynferðislegan  margbreytileika og aukið þar með öryggi, velferð og heilbrigði á sviði kynlífsins.

Sólveig Anna Bóasdóttir

„Þrátt fyrir ýmsan neikvæðan farangur hefur kristin kynlífssiðfræði mikilvæg sjónarmið fram að færa þegar rætt er um samfélagslegt réttlæti og kærleika.“

Sólveig Anna Bóasdóttir

„Rannsókn sem ég vann á árunum 2002 til  2004 og bar heitið „Ást og réttlæti. Til móts við nýja kynlífssiðfræði,“ var kveikjan að þessari nýju rannsókn og byggist sú nýja á þeirri fyrri. Sú fyrri, sem snerist um hjónaband samkynhneigðra, sýndi  mjög vel að kristin kynlífssiðfræði hefur gríðarlega mikil áhrif á hugsanagang nútímafólks um hjónabandið, kynlíf og ást, til góðs og ills,“ segir Sólveig Anna.

Í þessu nýja verkefni beinir hún sjónum að kynferðislegum margbreytileika og svokölluðum kynverundarréttindum. „Kristin kynlífssiðfræði er í eðli sínu íhaldssöm og hefur liðið fyrir það sem kalla má gagnkynhneigðarhyggju. Ég gagnrýni kristna hjónabandssiðfræði í rannsókn minni en tel jafnframt að margt sé nýtilegt og gott í  henni. Markmið rannsóknarinnar er að stuðla að kynferðislega réttlátu samfélagi og sýna fram á að kristin kynlífssiðfræði standi vörð um kynverundarréttindi alls fólks,“ segir Sólveig Anna