Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild
Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor í samgönguverkfræði, hefur kannað áhrif mismunandi sjúkdóma á alvarleika og fjölda umferðarslysa. „Dæmi eru um alvarleg slys sem heilsuskertir ökumenn hafa valdið. Það hefur verið tilhneiging í óformlegri umræðu að kenna „eldri“ ökumönnum sem hóp um slík slys en það er óréttlátt. Stundum heyrist sagt að skerða beri ökuréttindi eldri borgara enn frekar en nú er gert. Þó eru eldri ökumenn sem hópur einn sá öruggasti í umferðinni. Þrátt fyrir það geta tilteknir sjúkdómar sem hrjá einstaklinga, og verða vissulega algengari með aldrinum, valdið aukinni slysahættu í umferðinni,“ segir Guðmundur.
Guðmundur Freyr Úlfarsson
„Ein stærsta opna spurningin er hvernig hægt er að aðgreina örugga ökumenn frá þeim sem eru hættulegir í umferðinni. Tilgangurinn er að skerða ökuréttindi hættulegra, heilskuskertra ökumanna án þess að skerða ökuréttindi annarra. Heilsuskerðing er einn af áhættuþáttunum og því mikilvægt rannsóknarefni“

Rannsóknir á umferðaröryggi eru aðalrannsóknasvið Guðmundar Freys. „Ein stærsta opna spurningin er hvernig hægt er að aðgreina örugga ökumenn frá þeim sem eru hættulegir í umferðinni. Tilgangurinn er að skerða ökuréttindi hættulegra, heilskuskertra ökumanna án þess að skerða ökuréttindi annarra. Heilsuskerðing er einn af áhættuþáttunum og því mikilvægt rannsóknarefni,“ segir Guðmundur.
Rannsókn Guðmundar stendur enn yfir en niðurstöður úr hluta hennar sýna að heilabilun og annar heilaskaði eru þeir þættir heilsunnar sem skerða umferðaröryggi hvað mest. „Við vonum að með rannsóknum sem þessum verði unnt að þróa réttlátara matskerfi fyrir ökuhæfni sem getur aukið umferðaröryggi og jafnframt dregið úr einfaldri flokkun fólks eftir aldri sem veldur vissri aldursmismunun. Við vonum að hægt verði að nýta niðurstöðurnar til að fækka slysum, ekki síst alvarlegum slysum, sem tengjast heilsuskertum ökumönnum,“ segir Guðmundur. Þess má geta að m.a. hefur fengist stuðningur frá Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar og Rannsóknasjóði Háskóla Íslands til ákveðinna verkefna sem tengjast rannsókninni.
Í tengslum við eitt þeirra ritaði teymi sérfræðinga (m.a. frá Háskóla Íslands, Landspítala – Háskólasjúkrahúsi, Umferðarstofu og Rannsóknarnefnd umferðarslysa) bækling ætlaðan ökumönnum um tengsl heilsu og umferðaröryggis.