Ingibjörg Harðardóttir, prófessor við Læknadeild
„Rannsóknin snýst um að finna hvort og þá með hvaða hætti ómega-3 fitusýrur geta dregið úr bólgu,“ segir Ingibjörg Harðardóttir, prófessor í lífefna- og sameindalíffræði, sem hefur unnið að rannsókninni „Áhrif ómega-3 fitusýra í fæði músa á hjöðnun bólgu“ í samstarfi við Jónu Freysdóttur, dósent við Læknadeild, og Arnór Víkingsson, klínískan lektor við sömu deild.
Eins og nafnið bendir til er notast við músamódel fyrir langvinna bólgu til að skoða áhrif fitusýra á bólguferlið. „Undanfarin ár hafa fjölmargar rannsóknir sýnt að bólga kemur við sögu í mörgum langvinnum sjúkdómum eins og lungnateppu, hjarta- og æðasjúkdómum og Alzheimers-sjúkdómnum. Einnig benda rannsóknaniðurstöður til þess að lítil en viðvarandi bólga geti aukið líkur á sjúkdómum sem þessum. Mögulegt er að smábólga geti orsakast af því að hjöðnun bólgu sé ekki nægilega virk,“ segir Ingibjörg.
Ingibjörg Harðardóttir
„Rannsóknin snýst um að finna hvort og þá með hvaða hætti ómega-3 fitusýrur geta dregið úr bólgu.“

Rannsóknarteymið hefur til margra ára rannsakað áhrif ómega-3 fitusýra á bólguþætti og þá sérstaklega í upphafi bólgu. „Þær niðurstöður benda til þess að ómega-3 fitusýrur minnki bólguþætti í heilbrigðum einstaklingum en að í þeim sem eru með sýkingu eða annað bólguáreiti efli þær ónæmissvarið. Þær niðurstöður leiddu til áhuga á að kanna hvort ómega-3 fitusýrur geti einnig flýtt fyrir því að bólgan hjaðni,“ segir hún.
Frumniðurstöður benda til þess að svo sé. „Niðurstöður sýna að þegar langvinn bólga er framkölluð í músum leiðir ómega-3 fitusýrugjöf til þess að frumum sem gegna hlutverki við hjöðnun bólgu fjölgar og að magn boðefna sem tengjast hjöðnunni eykst,“ segir Ingibjörg. Jafnframt segir hún að niðurstöðurnar geti varpað nýju ljósi á hlutverk ómega-3 fitusýra í því að draga úr hættu á langvarandi bólgum og aukið möguleika á að nýta þessar fitusýrur.