Skip to main content

Íslensk náttúra er dýrmæt auðlind

Elín Soffía Ólafsdóttir, prófessor í Lyfjafræðideild

„Mér þykir áhugaverðast að skoða efni sem finnast í náttúrunni og rannsaka lífvirkni þeirra,“ segir Elín Soffía Ólafsdóttir, prófessor í lyfjafræði og deildarforseti Lyfjafræðideildar Háskóla Íslands. Elín hlaut nýverið styrk frá RANNÍS, ásamt Sesselju Ómarsdóttur lektor, til að rannsaka efni í plöntum og öðrum lífverum í íslenskri náttúru.

„Mest spennandi er að finna virk efni sem gætu nýst í baráttunni gegn sjúkdómum,“ segir Elín. „Um helmingur virkra efna í lyfjum koma úr náttúrunni. Þessi efni má finna í ýmsum lífverum og eru notuð meðal annars í krabbameinslyf, sýklalyf og lyf handa þeim sem þjást af Alzheimersjúkdómi.“

Elín telur mikilvægt að Íslendingar nýti sérstöðu sína í þágu vísindanna og þjóðarhags. „Lífríkið í sjónum í kringum Ísland er fjársjóður sem á mikið til eftir að skoða. Það er dýrmætt fyrir Íslendinga að eiga fjölbreytt lífríki sem hefur lítið verið rannsakað í þágu lyfjafræðinnar eða til annarrar nýtingar. Við þurfum að gera okkur grein fyrir mikilvægi þessarar auðlindar, nýta hana rétt og varðveita.“

Meistara- og doktorsnemar í lyfjafræði taka mikinn þátt í rannsóknum Elínar og samstarfsmanna. „Mér finnst mjög skemmtilegt að halda sambandinu við nemendur. Ég ætlaði mér aldrei að verða kennari, en núna finnst mér mjög gefandi að fá að miðla þekkingu og vinna með ungu fólki,“ segir Elín. „Nemendur vinna mjög sjálfstætt og það er mikið af verklegum tímum. Lyfjafræðin er krefjandi nám, en mjög fjölbreytt. Það er mjög margt að gerast í lyfjafræðinni og gríðarlegir fjármunir fara í að finna ný lyf og nýjar leiðir til lækninga.“

Elín segir nám í lyfjafræði bjóða upp á margvíslega möguleika. „Í hugum margra fara allir lyfjafræðingar að vinna í apótekum. En nú er löngu búið að taka framleiðsluna úr apótekunum og setja hana í framleiðslufyrirtækin svo að nú vinna lyfjafræðingar í apótekum, lyfjafyrirtækjum, við rannsóknir, á sjúkrahúsum, við skráningu lyfja og eftirlit svo að eitthvað sé nefnt,“ segir Elín. „Lyfjafræðingar skoða einnig lyfjahagfræðileg vandamál. Undir það flokkast verkefni Rannsóknastofnunar um lyfjamál sem lúta að því að skoða hvernig megi sporna við sóun á lyfjum og nýta betur þá peninga sem fara í heilbrigðiskerfið.“

Elín útskrifaðist árið 1980 frá Háskóla Íslands sem aðstoðarlyfjafræðingur en fór svo til Danmerkur til að ljúka prófi sem lyfjafræðingur og tók auk þess doktorspróf. „Mér finnst forréttindi að mega ákveða hvað ég vil rannsaka og hverju ég vil einbeita mér að. Núna erum við til dæmis í samstarfi við aðila, bæði innanlands og utan, háskólafólk og fyrirtæki, sem hafa áhuga á að nýta rannsóknir okkar sem víðast, allt frá matvælum að snyrtivörum eða lyfjum,“ segir Elín.

Elín Soffía Ólafsdóttir

„Um helmingur virkra efna í lyfjum koma úr náttúrunni. Þessi efni má finna í ýmsum lífverum og eru notuð meðal annars í krabbameinslyf, sýklalyf og lyf handa þeim sem þjást af Alzheimersjúkdómi.“

Elín Soffía Ólafsdóttir