Helgi Björnsson, vísindamaður í Raunvísindadeild
„Meirihluti jökla á Íslandi mun hverfa á næstu 100 til 150 árum,“ segir Helgi Björnsson, vísindamaður í jöklafræði. Helgi þróaði ásamt samstarfsmönnum sínum svokallaða íssjá sem notuð hefur verið til að afla grundvallargagna um alla helstu jökla landsins síðasta aldarfjórðunginn.
„Vor og haust er borað niður í ísinn til að mæla tekjur jökulsins,“ segir Helgi þegar hann lýsir í stuttu máli hvernig mælingar hafi farið fram síðustu 30 árin í sérstökum jöklaferðum. Helgi fullyrðir að mælingar sýni að mikið tap hafi orðið á jöklunum vegna hlýnunar. „Sjálfvirkar veðurathugunarstöðvar mæla hita og úrkomu. Hreyfingar jökulsins eru einnig mældar með stikum og gervitunglum, auk þess sem loftlagsfræðingar hafa gefið sviðsmynd af loftslagi næstu ára," segir Helgi og bætir við að þar sé farinn meðalvegur. „Þessar spár segja fyrir um að um 0,2 gráðu hlýnun verði á hverjum áratug út þessa öld og það muni hlýna hraðar á þeirri næstu eða um 0,25 gráður á hverjum áratug.“
Helgi Björnsson
„Langjökull verður horfinn eftir 120 til 130 ár, suðurhluti Vatnajökuls hverfur líka en Grímsvötn og norðurhluti Vatnajökuls gætu hugsanlega staðist áhlaupið í þrjár aldir,"

Helgi segir að afkomu- og flæðilíkön séu byggð á þessari mikilvægu gagnasöfnun. Helstu niðurstöður sýni að úrkoma aukist við hverja gráðu og við það stóraukist bráðnun jökla. Afleiðingarnar verði þær að afrennsli í jökulám aukist til muna næstu 50 til 60 ár en nái þá hámarki og gangi svo niður þar sem jöklarnir minnki. „Ár breyta um farvegi og aðrar hverfa. Fram undan eru því miklar breytingar á ám og vötnum," segir Helgi.
Hann segir að við lok þessarar aldar verði forði í jöklum mikið til horfinn. Land muni rísa um hartnær 200 metra þegar jökullinn hverfi og meiri líkur séu á eldgosum þegar fargið hverfi af eldstöðvunum sem þar eru undir. Helgi segir jafnframt að úrkomudreifing verði önnur og meiri en nú á hálendinu í framtíðinni, sem gæti verið til bóta fyrir gróðurinn. „Þetta eru hröðustu jöklabreytingar sem orðið hafa frá lokum jökulskeiðsins," segir Helgi.
„Langjökull verður horfinn eftir 120 til 130 ár, suðurhluti Vatnajökuls hverfur líka en Grímsvötn og norðurhluti Vatnajökuls gætu hugsanlega staðist áhlaupið í þrjár aldir," segir Helgi, aðspurður um framtíð jökla okkar Íslendinga. „Af Hofsjökli verður aðeins eftir smáskella eftir 200 ár eða svo. Jöklabreytingar gætu gengið hraðar fyrir sig ef hlýnun eykst frekar vegna loftmengunar."