Skip to main content

Icesave og söguskoðun Íslendinga

Guðmundur Hálfdanarson, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild

„Af hverju erum „við“ látin bera byrðar fallins einkabanka?“ er spurning sem margir Íslendingar hafa varpað fram í tengslum við Icesaveumræðuna. Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði, hefur rýnt í þetta deilumál út frá orðræðu og söguskoðun Íslendinga. „Skilgreining hugtaksins „við“ er hér lykilatriði því að með afmörkun „okkar“ ákvarðar fólk hvaða hópi það telur sig tilheyra og fyrir hönd hverra það talar. Með „okkur“ í þessari umræðu er vísað til íslensku þjóðarinnar,“ segir Guðmundur.

Guðmundur Hálfdanarson

Guðmundur veltir því fyrir sér hvers vegna Icesave-deilan hafi fengið jafnmikla athygli á þingi og í fjölmiðlum og raun ber vitni, fyrir utan þá augljósu staðreynd að gríðarlegir fjármunir eru í húfi.

Guðmundur Hálfdanarson

Guðmundur veltir því fyrir sér hvers vegna þessi deila hafi fengið jafnmikla athygli á þingi og í fjölmiðlum og raun ber vitni, fyrir utan þá augljósu staðreynd að gríðarlegir fjármunir eru í húfi. „Í fyrsta lagi hefur deilan snúist um það hvernig línur eru dregnar á milli saklausra fórnarlamba efnahagshrunsins og hinna sem teljast eiga sök á því. Að þessu leyti er hún barátta um skilgreiningar á hugtökunum „við“ – sem enga ábyrgð berum á „pakkanum“ – og „hinir“ – andstæðingar „okkar.“ Í öðru lagi fellur Icesave-deilan fullkomlega að hefðbundinni söguskoðun Íslendinga, enda hefur dæmum úr fortíðinni óspart verið flaggað til að skýra hegðun íslenskra stjórnmálamanna eða viðhorf útlendinga til „okkar“.

Í raun snýst deilan því ekki aðeins um þá milljarða sem okkur Íslendingum er gert að greiða með Icesave-samningnum, heldur einnig um sögulega orðræðu eða pólitíska heimsmynd sem mótast af sögulegum „minningum,“ segir Guðmundur. „Viðkvæðið er gjarnan að annað hvort göngum við í takt með „hinum,“ „tökum allan pakkann“ með þeim kostum og göllum sem honum fylgja, eða „ákveðum að standa ein og spjara okkur upp á eigin spýtur.“