Hákon Hrafn Sigurðsson, dósent við Lyfjafræðideild
„Í stuttu máli snýst rannsóknin um að athuga hvernig lyf með ólíka eðlisefnafræðilega eiginleika og lyf í smáum ögnum hegða sér í slímlagi. Slím þekur flesta vefi líkamans þar sem lyf eru gefin, að húðinni undanskilinni. Lyfin þurfa því að komast í gegnum slímlagið áður en þau ná til undirliggjandi vefjar til þess að virka,“ segir Hákon Hrafn Sigurðsson, dósent við Lyfjafræðideild.
Hákon Hrafn Sigurðsson
„Í stuttu máli snýst rannsóknin um að athuga hvernig lyf með ólíka eðlisefnafræðilega eiginleika og lyf í smáum ögnum hegða sér í slímlagi.“

Hákon hefur frá því að hann var í doktorsnámi rannsakað lyfjaform sem virðast loða við slímhimnur í líkamanum. „Á síðustu árum hefur það almennt verið viðurkennt að slímlagið getur hindrað töluvert upptöku lyfja í blóðrás en frekar lítið er vitað um hvernig lyf og agnir hegða sér í þessu slímlagi,“ segir Hákon.
Hann bendir á að nýjar vísbendingar hafi komið fram um að hægt sé að hafa áhrif á hversu lengi lyf staldra við í slímlaginu. „Mér fannst því spennandi að halda áfram á þessu sviði og þróa nýtt verkefni. Það er heppilegt að ég hef ágæt sambönd við rannsóknarhópa erlendis og get vonandi nýtt mér aðstöðu þeirra til að halda áfram í þessum rannsóknum,“ segir Hákon, en tekur fram að rannsóknin sé skammt á veg komin.
Hákon bendir á að með aukinni þekkingu á þessu sviði verði hægt að bæta lyfjagjöf í gegnum slímhimnur þar sem upptaka lyfjanna hefur hingað til verið léleg. „Rannsóknin mun væntanlega gagnast við að svara grunnspurningum á þessu sviði og þau svör er síðan hægt að nýta á breiðum grundvelli,“ segir Hákon að lokum.