Skip to main content

Hvert fer brennisteinsvetnið?

Snjólaug Ólafsdóttir, meistaranemi í Umhverfis- og byggingarverkfræði

„Ég hef lengi haft áhuga á jarðvarmavirkjunum, áhuginn kviknaði við sumarvinnu hjá Rannsóknarsviði Orkustofnunar sem nú heitir ÍSOR,“ segir Snjólaug Ólafsdóttir, doktorsnemi í Umhverfis- og byggingarverkfræðideild. Hún rannsakar magn og dreifingu brennisteinsvetnis frá jarðvarmavirkjunum. Rannsóknin heitir „Örlög brennisteinsvetnis frá jarðvarmavirkjunum“.

Snjólaug Ólafsdóttir

„Ég vona að með niðurstöðum rannsóknar minnar megi betur meta umhverfisáhrif jarðvarmavirkjana og þörf fyrir mótvægisaðgerðir og einnig hvaða mótvægisaðgerða hægt sé að grípa til.“

Snjólaug Ólafsdóttir

Snjólaug starfaði hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar þegar mælingar hófust þar á brennisteinsvetni og þar vaknaði áhuginn á því að rannsaka gasið betur. Hún kannar hvað verður um efnið eftir losun þess í andrúmsloftið, hversu miklu rignir út eða oxast í andrúmsloftinu. Einnig kannar hún hvaða veðurbreytur hafa mest áhrif á styrk við jörð. „Ég vona að með niðurstöðum rannsóknar minnar megi betur meta umhverfisáhrif jarðvarmavirkjana og þörf fyrir mótvægisaðgerðir og einnig hvaða mótvægisaðgerða hægt sé að grípa til.“

Leiðbeinandi: Sigurður Magnús Garðarsson, prófessor og forseti Umhverfis- og byggingarverkfræðideildar.