Auður Hauksdóttir, dósent við Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda og forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
Auður Hauksdóttir, dósent í dönsku, stundar rannsóknir á tengslum Íslendinga við danska tungu og menningu. Í einni af stærri rannsóknum Auðar hefur hún kannað hvernig íslenskum námsmönnum í Danmörku gengur að nota dönskuna sem þeir hafa lært hér heima áður en haldið er til náms ytra. „Ég er að kanna hvernig námsmönnum gengur að nota dönskuna í náminu og í öðrum samskiptum við Dani. Tæplega 300 námsmenn tóku þátt í rannsókninni, sem samanstendur af tveimur spurningalistarannsóknum og viðtalsrannsókn við lítinn hóp námsmanna. Spurningalistarannsóknin var lögð fyrir með þriggja ára millibili,“ segir Auður.
Auður Hauksdóttir
Auður segir að Íslendingar eigi mikið undir kunnáttu í Norðurlandamálum og því þurfi kennslan hér heima að vera skilvirk og árangursrík.

Auður segir að Íslendingar eigi mikið undir kunnáttu í Norðurlandamálum og því þurfi kennslan hér heima að vera skilvirk og árangursrík. „Í náminu ytra reynir mjög á dönskukunnáttuna og því búa námsmennirnir yfir reynslu og þekkingu sem getur varpað ljósi á hvað tekst vel í dönskukennslunni og hvað mætti betur fara,“ segir Auður.
Að sögn Auðar er Danmörk það land þar sem flestir Íslendingar stundi nám og þeir sæki nám í ólíkum greinum. „Mig langaði til að fá innsýn í á hvaða þætti máls og málnotkunar reynir mest hjá þessum námsmönnum.“
Niðurstöður liggja nú fyrir og þær eru um margt forvitnilegar. Hún segir að rannsóknin varpi ljósi á þær miklu kröfur um tungumálakunnáttu sem háskólanám útheimtir og hvernig íslenskir námsmenn séu í stakk búnir til að mæta þeim, hvað dönskuna varðar. „Þótt rannsóknin snúist um dönsku geta niðurstöðurnar einnig gagnast öðrum tungumálagreinum bæði hér heima og erlendis. Miklum tíma og fjármunum er varið til tungumálanáms og oftar en ekki ráðast hagsmunir af tungumálakunnáttu. Rannsóknin er innlegg í umræðu um sérhæfða tungumálakunnáttu, tungumálanám og árangur af skólastarfi.“
Auður segir að íslensku námsmennirnir hafi mjög sterkar skoðanir á því hvernig bæta megi tungumálakennsluna. „Ég hef kynnt niðurstöðurnar á ráðstefnum erlendis, nú síðast á ráðstefnu í Kaupmannahafnarháskóla, og ég er að leggja lokahönd á bók um rannsóknina og stefnt er að því að gefa hana út bæði hér og í Danmörku,“ segir Auður.