Skip to main content

Hvernig hegða efni sér?

Helgi Rafn Hróðmarsson, MS-nemi við Raunvísindadeild

Meistaraverkefni Helga Rafns Hróðmarssonar í efnafræði snýst um að orkuörva halógenefnasambönd með sterkum leysigeislum, en halógenefnasambönd eru sameindir sem innihalda frumefnin flúor, klór, bróm og/eða joð.

Rannsóknahópur hans hefur þróað nýjar mæli- og úrvinnsluaðferðir á þessu sviði, en með þeim er hægt að sýna fram á hegðunarmunstur orkuríkra sameinda. „Orkuríkar sameindir eru mikilvægur hlekkur í því að skilja hvernig efni hegða sér, meðal annars í heiðhvolfinu. Þær og sameindabrot þeirra eru litrófsgreind og hegðun og eiginleikar þeirra kannaðir með hjálp hermilíkana skammtafræðinnar.“

Helgi Rafn Hróðmarsson

„Orkuríkar sameindir eru mikilvægur hlekkur í því að skilja hvernig efni hegða sér, meðal annars í heiðhvolfinu. Þær og sameindabrot þeirra eru litrófsgreind og hegðun og eiginleikar þeirra kannaðir með hjálp hermilíkana skammtafræðinnar.“

Helgi Rafn Hróðmarsson

Helgi Rafn segir að rannsóknum af þessu tagi hafi vaxið ásmegin eftir því sem tækjabúnaður hefur eflst og orðið fullkomnari en betri tækjabúnaður skilar nákvæmari niðurstöðum. „Niðurstöður verkefnisins koma til með að hafa töluverða þýðingu fyrir ýmis svið efnafræðinnar, eins og loftslagsefnafræði og stjarnefnafræði en þessar greinar eru persónuleg áhugasvið mín. Halógenefnasambönd eru bæði heilsu- og umhverfisspillandi og hafa efni eins og freon, sem við höfum skoðað, sömuleiðis áhrif á eyðingu ósonlagsins. Skilningur á ljósvirkni þessara efnasambanda í heiðhvolfinu er því gríðarmikilvægur.“

Helgi Rafn segir að niðurstöðurnar hafi einnig töluverða þýðingu fyrir stjarnefnafræði þar sem efnasambönd eru greind úti í himingeimnum með ýmsum litrófsmælingum.

Þess má geta að á námsferli sínum hefur Helgi Rafn verið meðlimur í sprengjugenginu, hópi efnafræðinema sem sýnir reglulega tilkomumiklar tilraunir sínar.

Leiðbeinandi: Ágúst Kvaran, prófessor við Raunvísindadeild.