Skip to main content

Hvenær á barnið að byrja í leikskóla?

Ungum börnum í leikskólum fer fjölgandi og dvalartími þeirra lengist stöðugt. Norrænar rannsóknir hafa leitt í ljós að leikskólakennarar og leiðbeinendur telja að börn eigi að vera eldri en nú er raunin þegar leikskóladvöl hefst og dvelja þar skemur en þau gera nú. „Það var því ástæða til að fá svör við því hvort íslenskir starfsfélagar þeirra væru fylgjandi þessari þróun. Ef skoðanir þeirra og foreldranna rekast á í þessum efnum er líklegt að það valdi töluverðri togstreitu,“ segir Arna H. Jónsdóttir, lektor í leikskólafræði og menntastjórnun, sem nýverið rannsakaði þetta málefni.

Arna H. Jónsdóttir

Ungum börnum í leikskólum fer fjölgandi og dvalartími þeirra lengist stöðugt. Norrænar rannsóknir hafa leitt í ljós að leikskólakennarar og leiðbeinendur telja að börn eigi að vera eldri en nú er raunin þegar leikskóladvöl hefst og dvelja þar skemur en þau gera nú.

Arna H. Jónsdóttir

„Flestir þátttakendanna í rannsókn minni, eða tæp 37 prósent, töldu að börn ættu að hefja leikskólagöngu um tveggja ára aldur en ríflega helmingur þeirra norsku var á þeirri skoðun að þau ættu að byrja eins árs í leikskóla. Þá fannst Íslendingunum að börnin ættu að dvelja þar í 4–6 klukkustundir en Norðmennirnir töldu hins vegar 6–8 tíma nærri lagi. Þarna kemur því fram töluverður munur á skoðunum íslensku þátttakendanna á því hvað væri æskilegt og því hvernig staðan er í raun,“ segir Arna.

Rannsóknin snertir stefnumótun í málefnum barna og fjölskyldna á Íslandi, vinnutíma foreldra, vellíðan og nám ungra barna og gæði í leikskólastarfi. Arna segir að það sé full ástæða til að beina sjónum fremur að þessum þáttum í stað þess að foreldrar sitji uppi með samviskubit yfir því að börnin þeirra dvelji of lengi í leikskólanum.

Rannsóknin er samvinnuverkefni Menntavísindasviðs og tveggja norskra háskóla.