Skip to main content

Hrunið jók háþrýsting karla

Í lokaverkefni sínu til BS-prófs í hagfræði rannsakaði Dagný Ósk Ragnarsdóttir áhrif efnahagshrunsins á hjartasjúkdóma og háþrýsting og hvaða breytingar sem fólk gerði á lífi sínu hefðu áhrif á hjartaheilsu þess. „Það var einfaldlega rannsóknartækifæri í sjálfu efnahagshruninu sem ég gat ekki látið fram hjá mér fara. Samband efnahagsástands og hjartaheilsu hefur verið skoðað en niðurstöður rannsókna eru ekki einróma. Þetta samband er flókið þar sem langtímaþróun og ýmsir truflandi þættir hafa reynst rannsakendum fjötur um fót. Það að hrunið hafði skýrt upphaf gerði það að verkum að við vorum með hálfgerða „tilraunastofu“ í höndunum þar sem efnahagslífið fór snögglega úr böndunum, uppsveifla varð að hruni og því var hér tilvalið tækifæri til að meta þetta samband,“ segir Dagný.

Dagný Ósk Ragnarsdóttir

„Samband efnahagsástands og hjartaheilsu hefur verið skoðað en niðurstöður rannsókna eru ekki einróma. Þetta samband er flókið þar sem langtímaþróun og ýmsir truflandi þættir hafa reynst rannsakendum fjötur um fót.“

Dagný Ósk Ragnarsdóttir

Dagnýju fannst gaman að geta spreytt sig á rannsóknarefni sem hefur alþjóðlegt vísindalegt gildi. „Það setur manni ákveðnar kröfur um gæði en ég leit bara á það sem skemmtilega áskorun og lærði mikið af því að vinna rannsóknina. Það er einnig gaman að segja frá því að nú hefur rannsóknin verið samþykkt til birtingar í erlendu vísindatímariti,“ segir hún. 

Niðurstöðurnar benda til þess að efnahags- hrunið hafi aukið háþrýsting hjá körlum. Að hluta til, þótt að takmörkuðu leyti sé, má rekja það til fækkunar vinnustunda annars vegar og aukinnar streitu hins vegar. Þess má þó geta að heilsusamlegri hegðun íslenskra karlmanna eftir hrun, t.d. minni reykingar, gerði það að verkum að háþrýstingur jókst ekki eins mikið og annars hefði orðið. 

„Þetta segir okkur að sumir þættir sem hafa áhrif á hjartasjúkdóma og háþrýsting auka líkurnar á háþrýstingi en aðrir draga aftur á móti úr þeim. Ekki hefur verið sýnt fram á þetta í fyrri rannsóknum en þetta gæti verið ein hugsanleg ástæða fyrir mismunandi niðurstöðum rannsókna,“ útskýrir Dagný.