Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, doktorsnemi við Íslensku- og menningardeild
Sigríður Lára Sigurjónsdóttir rannsakar orðræðu ádeilu í íslensku leikhúsi fyrir og eftir efnahagshrunið árið 2008 í doktorsverkefni sínu við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Við rannsókn sína beitir Sigríður orðræðugreiningu og skoðar bæði handrit og fer á sýningar í leikhúsum. Hún beinir athygli sinni að tímabilinu frá 2004 til 2011 og skoðar hvernig eða hvort ádeiluefni í leikverkum hafi breyst. Hún skoðar þá sérstaklega hvort verkefnaval íslensku leikhúsanna hafi breyst og jafnframt hvort yrkisefni íslenskra leikskálda sé annað eftir hrunið en fyrir það.
Sigríður Lára Sigurjónsdóttir
Sigríður rannsakar orðræðu ádeilu í íslensku leikhúsi fyrir og eftir efnahagshrunið árið 2008 í doktorsverkefni sínu við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Við rannsókn sína beitir hún orðræðugreiningu og skoðar bæði handrit og fer á sýningar í leikhúsum.

Nauðsynlegt er fyrir rannsóknina að skilgreina ádeilu mjög ítarlega. „Núna vinn ég að skilgreiningu á hugtakinu ádeila, það er ekki svart-hvítt hvort leikrit séu ádeiluverk eða ekki. Ekki nema þau séu auglýst þannig,“ segir Sigríður. Hún skiptir ádeilu í þjóðfélagsádeilu og samfélagsádeilu. „Þjóðfélagsádeila fjallar meira um valdakerfi og snýr að stjórnun samfélagsins en samfélagsádeila fjallar frekar um tiltekin samfélagsmein.“ Jafnframt ber Sigríður saman þróun samfélagsspeglunar og gagnrýni íslensks leikhúss árin eftir hrun við leikhús Weimar-lýðveldisins í kreppu.
Við fyrstu sýn virðist Sigríði íslenskt leikhús einkennast af meiri tilraunastarfsemi eftir hrun en áður, en það bendir til að einhver formbreyting hafi átt sér stað. Sigríður veltir bæði fyrir sér hvort efni og form hafi tekið breytingum en samkvæmt henni er íslenskt leikhús furðu lítið rannsakað miðað við almennar vinsældir þess hér. Sigríður hefur lengi haft mikinn áhuga á leikhúsi og hafa áherslur hennar í náminu markast af því. Hún hefur einnig verið viðriðin áhugaleikhús og bæði skrifað leikrit og leikstýrt þeim.
Leiðbeinandi: Guðni Elísson, prófessor við Íslensku- og menningardeild.