Irma Erlingsdóttir, forstöðumaður RIKK og framkvæmdastjóri EDDU – öndvegisseturs
„Rannsóknin snýst að miklu leyti um greiningu hugtakanna lýðræði, siðfræði og sannleikur, ekki síst eins og þau birtast okkur í krísum,“ segir Irma Erlingsdóttir, forstöðumaður Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri EDDU – öndvegisseturs.
Hún byggir rannsóknir sínar m.a. á menningarfræðilegri greiningu og gagnrýni og notar kenningar ýmissa fræðimanna til að afhjúpa tilbúinn veruleika hrunsins. „Tilgangurinn er að greina orðræðu sem uppi var fyrir og eftir hið svokallaða hrun á Íslandi og benda á þörfina á róttækari samfélagsrýni svo að unnt sé að „sættast við fortíðina.“ Ef til vill mætti segja að mannkynssagan verði „margsaga“ og þar með (skáld) saga í meðferð afbyggingar. Í þessum tilgangi er ekki eingöngu vísað til svokallaðrar afbyggingarheimspeki heldur einnig skáldskapar eða skáldskrifa tiltekinna fræðimanna og rithöfunda,“ bendir Irma á.
Irma Erlingsdóttir
Irma byggir rannsóknir sínar m.a. á menningarfræðilegri greiningu og gagnrýni og notar kenningar ýmissa fræðimanna til að afhjúpa tilbúinn veruleika hrunsins.

Hún segir að kveikjan að rannsókninni hafi verið rannsóknaráherslur EDDU – öndvegisseturs. „Í rannsóknaráætlun setursins fyrir árið 2009 til 2010 var lögð áhersla á að rannsaka áhrif alþjóðlegu fjármálakreppunnar og íslenska bankahrunsins sem fylgdi í kjölfarið. Í framhaldinu verður lögð rækt við rannsóknir á pólitísku, samfélagslegu og hugarfarslegu endurmati og uppbyggingu innan lands og utan,“ segir Irma.
Markmiðið er, að sögn Irmu, að afhjúpa menningarlega einsleitni íslensks samfélags og bera íslenska orðræðu um hugtök eins og réttlæti, lýðræði, sannleika og ábyrgð saman við orðræðu og reynslu annarra þjóða sem hafa upplifað „svarta kafla“ í sögu sinni. „Miklu skiptir að hafa áhrif á akademíska og opinbera umræðu um lýðræðis-, efnahags- og stjórnlagabreytingar. Rannsóknin snertir umræðuna um samfélagsábyrgð, ekki síst ábyrgð háskóla, í samhengi við „hrunið.“ Eins og svo oft áður tók hún á sig ýmsar myndir sem birtust meðal annars í veikri andstöðu gegn ráðandi hugmyndafræði, afskiptaleysi og þöggun,“ segir Irma að lokum.