Skip to main content

Hross mynda sterk vináttubönd

Hrefna Sigurjónsdóttir, prófessor í líffræði við Menntavísindasvið

„Hross mynda sterk vináttusambönd,“ segir Hrefna Sigurjónsdóttir, prófessor í líffræði við Menntavísindasvið. Rannsókn hennar snýst um félagshegðun hrossa en við rannsóknina fylgdist hún með villtu stóði í Austur-Landeyjum. Þetta gerði Hrefna ásamt Önnu G. Þórhallsdóttur, prófessor við LBHÍ, og tveimur nemum.

Hrefna Sigurjónsdóttir

Rannsókn Hrefnu snýst um félagshegðun hrossa en við rannsóknina fylgdist hún með villtu stóði í Austur-Landeyjum.

Hrefna Sigurjónsdóttir

Á svæðinu réðu fjórir graðhestar ríkjum, hver með sitt stóð sem gekk laust á um 200 hektara landi. Engar girðingar voru til þess að hólfa stóðin af, en hver graðhestur hélt sínu stóði innan ákveðins svæðis. Þótt svæðin hafi skarast blönduðust stóðin ekki. Hrefna segir að furðu sjaldan hafi komið til átaka. „Við fylgdumst með stóðunum í 320 tíma samtals sem krafðist úthalds og þolinmæði. Fyrstu næturnar voru kaldar og nokkrum sinnum þurftum við að flýja vegna sandroks sem skall á. Það verður að segjast að kraftgallarnir og heitt á brúsa er það sem bjargar manni við svona vinnu,“ segir Hrefna.

Hún segir að innræktun í þessum stóðum sé ekki meiri en í skipulagðri ræktun, en náttúran virðist sjá um slíkt. „Stóðhestarnir reka ungu hrossin á vissum tímapunkti út úr hópnum, þ.á m. afkvæmi sín. Eftir það þurfa þau að bjarga sér sjálf og aðlagast nýjum hópi.“

„Hópar einkennast af virðingarröð og flóknu tengslaneti vináttusambanda. Þegar nýr hestur kemur inn í stóð er honum yfirleitt úthýst til að byrja með og hann þarf að sýna kjark til þess að vinna sér sess innan hópsins. Stundum verndar ráðandi hestur þann nýja. Við vitum líka að ung hross leita sér stundum skjóls hjá hinum æðri í hópnum.“

Hrefna segir að rannsóknir sínar og félaga sinna geti nýst vel hestaeigendum um allt land. Nauðsynlegt sé að hross alist upp í hóp, en þannig læri ungviðið reglurnar í samfélagi sínu. Hrefna segir að á Íslandi sé talið sérstakt umhverfi fyrir uppeldi hrossa.