Vilhjálmur Steingrímsson, nemi við Læknadeild
„Með rannsókninni er lagður grunnur að líkani sem reiknar út hættu á kransæðasjúkdómi hjá fólki á aldrinum 65 til 85 ára út frá gefnum áhættuþáttum,“ segir Vilhjálmur Steingrímsson, nemi í læknisfræði, um verkefni sem hann vann að sumarið 2011 fyrir tilstyrk Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Verkefnið hlaut nýsköpunarverðlaun forseta Íslandsárið 2012.
Vilhjálmur Steingrímsson
„Með rannsókninni er lagður grunnur að líkani sem reiknar út hættu á kransæðasjúkdómi hjá fólki á aldrinum 65 til 85 ára út frá gefnum áhættuþáttum“

Í áhættureikni sem Vilhjálmur hefur hannað er notast við gögn úr öldrunarrannsókn Hjartaverndar. Vilhjálmur bendir á að áhættureiknar fyrir fólk yngra en 65 ára hafi þegar verið notaðir. „Hins vegar hafa birst greinar um að niðurstöður þeirra hafi takmarkað spádómsgildi þegar þær eru færðar yfir á eldra þýði. Þó það sé flóknara að vinna áhættureikni fyrir eldri hóp býr Hjartavernd yfir góðum og nákvæmum gögnum sem hægt var að vinna úr,“ segir hann.
Að mati Vilhjálms er viðfangsefnið krefjandi. „Mér fannst þörf á því að vinna einnig áhættumat fyrir þennan aldurshóp. Markviss áhættureiknir gæti gagnast við að grípa inn í þróun kransæðasjúkdóms með fyrirbyggjandi meðferðum,“ bendir hann á.
Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar voru settar fram í haust. „Þar kemur í ljós að margir hefðbundnir áhættuþættir, eins og aldur, reykingar, blóðþrýstingur og sykursýki, eru mismarktækir eftir aldri. Einnig voru óhefðbundnir áhættuþættir notaðir við gerð áhættureiknisins. Næsta skref er að vinna að birtingu í ritrýndu tímariti og jafnvel að gagnreyna spágetu reiknisins á erlendu þýði,“ segir hann.
Spurður um þýðingu rannsóknarinnar fyrir vísindi og samfélagið segir Vilhjálmur að áhættureiknir fyrir þennan aldurshóp sé öflugt tól til að gera greiningu og meðferð á kransæðasjúkdómi markvissari en áður. „Með því að tefja hjartaáfall um nokkur ár mætti auka lífsgæði aldraðra og létta byrði af heilbrigðiskerfinu. Kransæðasjúkdómar eru ein helsta orsök heilsubrests hjá öldruðum og kostnaður við lyf og þjónustu sem þeim fylgja er mikill,“ segir Vilhjálmur.
Leiðbeinendur: Vilmundur Guðnason, prófessor við Læknadeild og forstöðulæknir Hjartaverndar, og Thor Aspelund, dósent við Læknadeild.