Skip to main content

Hjálpræði á hvíta tjaldinu

Árni Svanur Daníelsson, doktorsnemi í guðfræði

„Ég hef skoðað guðfræðistef í kvikmyndum, nánar tiltekið svokölluð hjálpræðis- og frelsunarstef," segir Árni Svanur Daníelsson, doktorsnemi í guðfræði og stundakennari við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ.

„Í nýlegri rannsókn tók ég fyrir þrjár kvikmyndir sem má skoða í ljósi hjálpræðis og frelsunar, suðurafrísku kvikmyndina Tsotsi (Óþokkinn) sem var frumsýnd 2005, og bandarísku kvikmyndirnar Levity (2003), og In America (2002). Í þessum þremur myndum er að finna þroskasögur einstaklinga sem glíma við erfiðleika."

Árni Svanur Daníelsson

„Ég hef skoðað guðfræðistef í kvikmyndum, nánar tiltekið svokölluð hjálpræðis- og frelsunarstef,"

Árni Svanur Daníelsson

Tsotsi fjallar um samviskulausan unglingspilt í Jóhannesarborg í Suður-Afríku sem fremur morð með glæpagengi og leggst svo lágt að niðurlægja fatlaðan útigangsmann. Skömmu síðar stelur pilturinn bíl en kemst fljótt að því að í aftursætinu er barn sem hann ákveður að fara með heim til sín í fátækrahverfið. Barnið snýr hinum harðsvíraða morðingja frá glötunarferli og umbreytingin sem á sér stað á sex daga tímabili vekur samúð áhorfenda.

„Sameiginlegt með öllum þremur myndunum er að aðalpersónurnar eru í vanda, sem jafnvel mætti kalla synd, og að þeim er bjargað af öðrum.

Ég skoðaði hvaða sögur það eru sem við getum kallað hjálpræðissögur og vinn að því að útbúa módel til þess að nota í greiningu á kvikmyndum þar sem slíkar sögur eru sagðar. Í mörgum þeirra eru líka fleiri en einn einstaklingur í þörf fyrir frelsun. Í Levity leitar aðalsöguhetjan að lausn frá fortíðinni og uppgjöri við erfiða reynslu í eigin fortíð, en verður um leið endurlausnari annarrar persónu."

Leiðbeinandi: Einar Sigurbjörnsson, prófessor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild.